Búið er að stofna aðgang nemenda að tölvupóstkerfi MK með aðgangi að fimm eintökum af Office Professional Plus 2016, fyrir Windows, Apple tölvur, iPad, iPhone og Android stýrikerfi og gildir áskriftin á meðan á skólagöngu stendur.
Notandanafnið og tölvupóstfangið er á forminu This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. þar sem kennitala kemur í stað strika.
Lykilorð: Sama og í Innu með eftirfarandi breytingum ef þarf:
- Minnst 8 stafir (fyllt upp með tölunni 1 eins oft og þarf)
- Mest 16 stafir (klippt aftan af ef þarf)
- Engir sér íslenskir stafir (o sett í stað ö, t í stað þ o.s.frv.)
Settu stórt A fremst í lykilorðið ef það er enginn stór stafur í lykilorðinu þínu.
Aðgangur að tölvupóstkerfinu/Office pakkanum er í gegnum slóðina: http://portal.office.com eða smellt er á Póstflipann hér hægra megin á síðunni.
Ef beðið er um að virkja notkun á forritunum þá þarf að staðfesta aðganginn með ofangreindu notendanafni og lykilorði, ekki nota Product Key sem er einn af valmöguleikunum.
Uppfært miðvikudagur, 22 ágúst 2018 13:57