Nám í framreiðslu er þriggja ára samningsbundið iðnnám, sem skiptist í bóklegar og verklegar greinar, þrjár annir í skóla og vinnu undir handleiðslu meistara. Nám í skóla eru sextíu og einingar þar af 29 einingar í verklegri og bóklegri framreiðslu. Námsmat í framreiðslu fer fram í verklegum og skriflegum prófum og lýkur með skólaprófi og sveinsprófi.
Kjörorð deildarinnar eru:
þekking - háttvísi - mannauður - hugmyndaflug - sköpunargleði
| Framreiðsla | ||
| Almennar bóklegar greinar | 11 einingar | |
| Íslenska | ÍSL102 | 2 |
| Erlend mál | ENS102 | 2 |
| Stærðfræði | STÆ102 | 2 |
| Lífsleikni | LKN131, 231, 331 | 3 |
| Íþróttir | ÍÞR101, 111, 201 | 3 |
| Sérgreinar | 48 einingar | |
| Fagfræði framreiðslu | FFF107, 205 | 12 |
| Framreiðsla | FFR107, 208 | 15 |
| Hreinlætis- og örverufræði | HRÖ101 | 1 |
| Iðnreikningur | IÐM102 | 2 |
| Íslenska fyrir matvæla- og veitingagreinar | ÍSL222 | 2 |
| Matseðlafræði | MSF101, 201 | 2 |
| Næringarfræði | NÆR113 | 3 |
| Stærðfræði fyrir matvæla- og veitingagreinar | STÆ222 | 2 |
| Tungumál fyrir matvæla- og veitingagreinar | DAN102, 222, ENS222 | 6 |
| Vínfræði | VÍN102 | 2 |
| Öryggismál og skyndihjálp | ÖRS101 | 1 |
| Starfsþjálfun 80 vikur | 80 einingar | |
| Samtals: | 140 einingar | |
Framreiðsla er víðtækt orð og nær yfir marga starfsþætti. Það er fjölbreytt og krefst færni í vinnuskipulagi og samvinnu. Starfið krefst mannþekkingar, hæfileika til að umgangast fólk og lipurð í mannlegum samskiptum.
Gestir veitingahúsa koma úr öllum stéttum samfélaga frá hinum almenna borgara til þjóðhöfðingja og þarf framreiðslumaður að hafa kunnáttu og þekkingu til að umgangast og uppfylla kröfur þessara þjóðfélagshópa.
Starfið er jafnframt skapandi og gefandi og reynir á frumkvæði til að skapa þær aðstæður sem óskað er eftir við mismunandi tilefni.
Framreiðslumaður er lykilpersóna í starfsemi hótela og veitingahúsa og þegar kemur að því að gestir meti gæði þjónustu.





