Undanfari: enginn
Í áfanganum er rakin saga og þróun ferðaþjónustu í heiminum og á Íslandi. Kynnt grundvallarhugtök í ferðafræði og farið í hinar ýmsu starfsgreinar ferðaþjónustu og ferðaframboð. Farið er í ferlið frá því að ferð er skipulögð, kynnt og seld erlendis þar til ferðamennirnir koma til landsins. Lögð er áhersla á lög og reglugerðir í íslenskri ferðaþjónustu, öryggismál, ábyrgð, tryggingar og leyfi. Fjallað er um hlutverk og starfsemi opinberra stofnana og félaga innan ferðaþjónustunnar, ferðakannanir, tölulegar upplýsingar og þýðingu þeirra fyrir ferðaþjónustuna. Nemendur fara í heimsókn á ferðaskrifstofu og kynna sér hagnýt atriði í samskiptum leiðsögumanns og skrifstofanna, einnig helstu ferðagögn, ferðaáætlanir, ferðaframboð og markaðssetningu ferða. Lögð er áhersla á að nemendur afli sér upplýsinga af veraldarvefnum.
Markmið
Nemandi á að þekkja
- sögu og þróun ferðaþjónustu í heiminum og á Íslandi
- grundvallaratriði úr ferðafræði og hugtök sem þar eru notuð
- lög og reglur í íslenskri ferðaþjónustu, réttindi og skyldur og nauðsynleg leyfi
- öryggismál, tryggingar, neytendavernd, skaðabætur, ábyrgð
- hinar ýmsu starfsgreinar ferðaþjónustu, s.s. ferðaskrifstofur, ferðaskipuleggjendur, hópbíla, bílaleigubíla, hótel, gististaði, veitingastaði
- ferðaframboð, s.s. rútuferðir, gönguferðir, jeppaferðir, vélsleðaferðir, flúðaferðir, hestaferðir, hundasleðaferðir, fossaklifur, afþreyingarferðir, áhættuferðir
- helstu hugtök sem notuð eru innan ferðaþjónustunnar, s.s. hvataferð, afþreyingarferð, menningartengda ferðaþjónustu, heilsutengda ferðaþjónustu, græna ferðamennsku
- hlutverk og starfsemi Ferðamálastofu, Samtaka ferðaþjónustunnar og annarra félaga á þessu sviði
- helstu útgefna bæklinga, markmið landkynningar og markaðssetningu Íslands
- ferlið frá því að ferð er skipulögð, kynnt og seld erlendis þar til ferðamennirnir koma til landsins
- ferðamálakannanir og þýðingu þeirra, tölulegar upplýsingar um tekjur af ferðaþjónustu, fjölda ferðamanna, skiptingu þeirra eftir þjóðerni og komutíma