TMN112 Tungumálanotkun I

Undanfari: enginn

Æfð er framsetning og frásagnartækni á íslensku með hliðsjón af námskeiðinu Leiðsögutækni - samskipti (LES102). Leiðbeint er um efnistök og framsögu í samræmi við námsefni í áföngunum Atvinnuvegir (ATV101), Bókmenntir og listir (BOL102) Dýralíf (DÝR101), Gróður og náttúruvernd (GRN101), Íslandssaga (SAG101), Íslenska samfélagið (ÍSA101) og Jarðfræði (JAR102). Auk þessa er lögð áhersla á flétta inn í frásagnirnar mannlífslýsingum og merkum persónum úr héraði. Nemendur eru þjálfaðir í að setja mál sitt fram í skýrum, knöppum stíl þannig að frásögnin verði blæbrigðarík, áheyrileg og skemmtileg.

Markmið

Nemandi fái

  • talþjálfun
  • leiðbeiningar um frásagnartækni og framsetningu
  • þjálfun í sjálfstæðum vinnubrögðum
  • raunhæf verkefni sem hann æfir sig í að flytja munnlega og blaðalaust
  • þjálfun í að útbúa stiklur sem nýtast í starfi
  • munnlegar æfingar í einstökum efnisþáttum kjarnagreinanna
Síðast uppfært 22. mars 2019