- Skólinn
- Námsleiðir
- Nemendur
- Nemendaþjónusta
- Upplýsingatækniver
- Leiðsöguskólinn
- Hótel- og matvælaskólinn
Á viðskiptabraut er áhersla lögð á að byggja upp sterkan þekkingargrunn á sviði viðskipta- og hagfræðigreina. Nemendur öðlast innsýn í fræðilegar starfsaðferðir sviðsins með þjálfun í menningar- og náttúrulæsi í þverfaglegum áföngum. Með frjálsu vali geta nemendur aðlagað námið að þörfum sínum og áhugasviðum. Brautinni lýkur með stúdentsprófi og þar með býr nemandinn yfir þekkingu, leikni og hæfni til að takast á við nám á háskólastigi. Brautin er góður undirbúningur fyrir frekara nám s.s. í viðskiptagreinum, hagfræði og lögfræði. Þá veitir námið góða innsýn í íslenskt viðskiptaumhverfi.
sjá hér
Námstími til stúdentsprófs er þrjú ár og þarf nemandi að ljúka 33-34 einingum á önn til að ljúka á þeim tíma. Athugið að frá og með vorönn 2022 verða áfangar á fyrsta þrepi í kjarnagreinum (dönsku, ensku, íslensku og stærðfræði) ekki metnir til eininga.
Nám á viðskiptabraut er alls 200 einingar sem skiptast í 100 einingar í kjarna, 50 einingar þar sem nemandi sérhæfir sig í viðskipta- og hagfræðigreinum, 5-20 einingar að auki í stærðfræði og 30-45 einingar í opnu vali á 1. – 4. þrepi þar sem nemendur eru hvattir til að dýpka enn frekar þekkingu sína. Það er mikilvægt að nemendur skipuleggi nám sitt með aðgangsviðmið háskóla í huga eftir því sem við á.
Heiti fags, (einingar) skammstöfun fags og skammstöfun áfanga með tengli í áfangalýsingu
Opið val á 1.-4. þrepi. Mikilvægt er að halda áfram að dýpka þekkingu sína og velja hér fleiri áfanga af sérsviði brautarinnar eins og t.d. MARR3CA05, REKS3CA05, STJÓ2BA05, TÖBÓ2BA05, ÞJÓÐ3CA05 eða annað val sem skólinn samþykkir sem brautarval. Einnig má velja fleiri áfanga í dönsku, ensku, íslensku, stærðfærði, þriðja máli og íþróttum.
Hafa þarf í huga við allt val að einingar á fyrsta þrepi geta verið 66 að hámarki, annars þreps einingar geta verið 100 að hámarki og það þurfa að vera að lágmarki 34 einingar á þriðja þrepi.
Að loknu námi á viðskiptabraut skal nemandi hafa hæfni til að