- Skólinn
- Námsleiðir
- Nemendur
- Nemendaþjónusta
- Upplýsingatækniver
- Leiðsöguskólinn
- Hótel- og matvælaskólinn
Bakstur | Framreiðsla |
Kjötiðn | Matreiðsla |
Grunndeild | Framhaldsnám |
Iðnnám í matvælgreinum er samningsbundið iðnnám sem tekur ýmist þrjú eða fjögur ár.
Nemendur þurfa að hafa gott vald á íslensku bæði töluðu- og rituðu máli.
Námið fer fram í skóla og á vinnustað og þurfa nemendur að vera komnir á námssamning (sjá nánari upplýsingar á Idan.is) áður en þeir hefja nám í skóla. Meginmarkmið iðnnáms í matvælagreinum er að nemendur hljóti nauðsynlega, almenna og faglega menntun til að takast á við þau störf sem tilheyra greinunum.
Nemendur öðlast þekkingu á hráefni, vélum, tækjum og öðrum búnaði ásamt þeim hreinlætiskröfum sem gerðar eru í matvælagreinum.
Að loknu námi í skóla og á starfsþjálfunarstað hafa nemendur öðlast víðtæka innsýn í helstu störf greinanna, tileinkað sér helstu verkþætti og þjálfast í sjálfstæðum vinnubrögðum og samstarfi við aðra.
Nánari upplýsingar veitir Magnús Héðinsson framkvæmdastjóri matvælaskólans, námsráðgjafar og námsstjóri upplýsingar um námið. Síminn skólans er 5944000. Einnig er hægt að senda tölvupóst.