- Tilgangur vöktunar er að koma í veg fyrir þjófnað, eignarspjöll og til að tryggja öryggi nemenda og starfsmanna skólans.
- Skólinn og lóðinn umhverfis hann er vaktaður með eftirlitsmyndavélum.
- Við alla almenna innganga skólans og á lóð hans er spjald með texta um að í skólanum sé virkt eftirlit með myndavélum.
- Eftirfarandi aðilar hafa aðgang að myndefni úr eftiritsmyndavélum:
-
- stjórnendur
- umsjónarmaður fasteigna skólans
- ræstingarstjóri
- í undantekningartilfellum gæti þurft að leita til þriðja aðila þurfi að bera kennsl á einstaklinga eða greina aðstæður
- Myndefni er ekki geymt lengur en í 90 daga nema í sérstökum tilvikum og þá tengt málum sem upp kunna að koma skv. lið 1.
- Upptökur eru ekki til opinberar birtingar. Ef nauðsyn krefur þá getur komið til þess að lögreglu sé afhent myndefni eftir því sem persónuverndarlög leyfa.
- Einstaklingur/einstalingar sem er/u vaktaður/ir geta fengið að skoða gögn um sig (þ.e. upptökur) nema hagsmunir annarra vegi þyngra.
LSM-035
Síðast uppfært 31. mars 2022