- Skólinn
- Námsleiðir
- Nemendur
- Námsráðgjöf
- Upplýsingatækniver
- Leiðsöguskólinn
Í Upplýsingatækniverinu er góð aðstaða til að læra og þar á að vera góður vinnufriður.
Í boði eru fimm hópvinnuborð og eitt hópvinnuherbergi. Nemendur geta pantað hópvinnuherbergið hjá Ingibjörgu.
Á bókasafninu eru bækur, tímarit og geisladiskar og gott úrval fagbóka sem tengjast matvælagreinum, Á námsbókasafni eru flestar námsbækur sem kenndar eru í MK. Þær eru eingöngu til útláns í tíma eða til notkunar á bókasafninu.
Í Upplýsingatækniverinu eru sex borðtölvur til afnota fyrir nemendur. Einnig eru 30 fartölvur sem lánaðar eru út í kennslustund til nemenda. Kennari þarf að óska eftir láni fyrir nemandann og einungis er lánað í eina kennslustund í senn.
Neysla á mat og drykk er ekki leyfð og ekki er æskilegt að tala í farsíma.