181 nemendur brautskráðir frá MK vorið 2025

Fimmtudaginn 22 maí brautskráðust 33 leiðsögumenn, 12 matsveinar, 1 matartæknir og 19 iðnmeistarar. Föstudaginn 23. maí voru brautskráðir 77 stúdentar (þar af 26 af afreksíþróttasviði), 35 iðnnemar og fjórir nemar af starfsbraut. Alls brautskráðust því 181 nemi frá Menntaskólanum í Kópavogi.

Góður námsárangur

Forseti bæjarstjórnar, Elísabet Berglind Sveinsdóttir, afhenti viðurkenningar úr Viðurkenningarsjóði MK sem var stofnaður af bæjarstjórn Kópavogs á 20 ára afmæli skólans árið 1993. Að þessu sinni fengu tveir nemendur viðurkenningu. Nýstúdent Una Karen Guðmundsdóttir, en hún er dúx skólans með einkunnina 9,84, og nýsveinn Tinna Sædís Ægisdóttir fyrir hæstu meðaleinkunn í verknámi.

Háskólinn í Reykjavík veitti semi dúx skólans, Mikael Mána Weisshappel Jónssyni, bókaverðlaun og niðurfellingu skólagjalda á fyrstu önn í HR fyrir framúrskarandi árangur í raungreinum á stúdetnsprófi.

Háskóli Íslands veitti nýstúdent, Önnu Salvöru Erlingsdóttur, peningaverðlaun og frí skólasgjöld í HÍ fyrir framúrskarandi árangur á stúdentsprófi sem byggir á breiðum þekkingargrunni.

Rótarýklúbburinn Þinghóll veitti nýstúdent Þóru Ákadóttur Thoroddsen viðurkenningu fyrir góðan námsárangur í félagsgreinum.

Rótarýklúbbur Kópavogs veiti nýstúdent Unu Karen Guðmundsdóttur viðurkenningu fyrir góðan námsárangur í raungreinum.

Rótarýklúbburinn Borgir veitti nýsveini í bakstri, Tinnu Sædísi Ægisdóttur, viðurkenningu fyrir góðan námsárangur í verknámi.

Starfsfólk Menntaskólans í Kópavogi óskar útskrifuðum nemendum skólans og fjölskyldum þeirra hjartanlega til hamingju með daginn. Megi gæfan fylgja ykkur í lífi og starfi.