Menntaskólinn í Kópavogi brautskráir 230 nemendur

Tvær brautskráningar fóru fram við Menntaskólann í Kópavogi á þessu vori við hátíðlega athöfn í Digraneskirkju.

Fimmtudaginn 21. maí brautskráðust 23 leiðsögumenn, 16 matsveinar og 43 iðnmeistarar.

Föstudaginn 22. maí voru brautskráðir 98 stúdentar (þar af 48 af afreksíþróttasviði), 43 iðnnemar og sjö nemar af starfsbraut.

Alls brautskráðust því 230 nemar frá Menntaskólanum í Kópavogi á vorönn 2026.

 

Góður námsárangur - viðurkenningar

Forseti bæjarstjórnar, Björg Baldursdóttir, afhenti viðurkenningar úr viðurkenningarsjóði MK sem var stofnaður af bæjarstjórn Kópavogs á 20 ára afmæli skólans árið 1993. Að þessu sinni fengu tveir nemendur viðurkenningu. Nýstúdent Helga Soffía Sigurðardóttir fyrir hæstu meðaleinkunn á stúdentsprófi og nýsveinn Árný Lind Berglindardóttir fyrir hæstu meðaleinkunn í verknámi.

Háskólinn í Reykjavík veitti Níels Jóhanni Júlíussyni bókaverðlaun og niðurfellingu skólagjalda á fyrstu önn í HR fyrir framúrskarandi árangur í raungreinum á stúdentsprófi. Níels Jóhann útskrifaðist með næsthæstu meðaleinkunn á stúdentsprófi vorið 2026.

Háskóli Íslands veitti nýstúdent, Ingu Fanneyju Hauksdóttur, peningaverðlaun og frí skólagjöld í HÍ fyrir framúrskarandi árangur á stúdentsprófi sem byggir á breiðum þekkingargrunni. Inga Fanney hefur lokið fjölmörgum einingum í raungreinum, félagsgreinum og tungumálum, auk þess að að ljúka sjö stærðfræðiáföngum.

Rótarýklúbburinn Þinghóll veitti nýstúdent Nadja Djurovic viðurkenningu fyrir góðan námsárangur í félagsgreinum.

Rótarýklúbbur Kópavogs veiti nýstúdent Helgu Soffíu Sigurðardóttur viðurkenningu fyrir góðan námsárangur í raungreinum.

Rótarýklúbburinn Borgir veitti nýsveini í bakstri, Önnu Kolbrúnu Stefánsdóttur, viðurkenningu fyrir góðan námsárangur í verknámi.

Þá hlaut nýstúdent, Diljá Dís Sigtryggsdóttir, sérstaka viðurkenningu fyrir einstakan dugnað og mikla þrautsegju í námi en hún lauk námi á þremur árum þrátt fyrir verulegar áskoranir og krefjandi aðstæður.

Starfsfólk Menntaskólans í Kópavogi óskar útskrifuðum nemendum skólans og fjölskyldum þeirra hjartanlega til hamingju með daginn. Megi gæfan fylgja ykkur í lífi og starfi.