Afreksíþróttasvið - raungreinabraut

Prentvæn útgáfa

Á raungreinabraut er áhersla lögð á að byggja upp sterkan þekkingargrunn á sviði náttúru-, raunvísindagreina og stærðfræði þar sem nemendur öðlast innsýn í fræðilegar starfsaðferðir.

Með bundnu vali geta nemendur aðlagað námið að þörfum sínum og áhugasviðum. Brautinni lýkur með stúdentsprófi og þar með býr nemandinn yfir þekkingu, leikni og hæfni til að takast á við nám á háskólastigi. Brautin er góður undirbúningur fyrir frekara nám í heilbrigðisvísindum, náttúru- og raunvísindum, umhverfisvísindum, stærðfræði og tæknigreinum. Með afreksíþróttasviði er nemanda sem stundar keppnisíþróttir gert kleift að stunda þær samhlíða námi.

Inntökuskilyrði

sjá hér

Námstími

Námstími til stúdentsprófs er þrjú ár og þarf nemandi að ljúka 33-34 einingum á önn til að ljúka á þeim tíma.

Brautin skiptist í kjarna 178 einingar (þar af 30 einingar í afreksíþróttir) og 25 einingar bundið val, samtals 203 einingar

178 einingar - kjarni 

 

25 einingar - bundið val

Nemandi velur 10 einingar eða tvo áfanga*

  • Enska ENSK 3CB05
  • Stærðfræði STÆR 3CA05 (Ályktunartölfræði og líkindareikningur), 3CD053CE05

Nemandi velur 15 einingar eða þrjá áfanga*

 *Nemendur velja áfanga í bundið val, miðað við aðgangsviðmið háskóla

Hafa þarf í huga við allt val að einingar á fyrsta þrepi geta verið 66 að hámarki, annars þreps einingar geta verið 100 að hámarki og það þurfa að vera að lágmarki 34 einingar á þriðja þrepi.

Lágmarkseiningafjöldi til stúdentsprófs er 203 einingar, en nemandi má útskrifast með fleiri einingar.

Danska, enska, íslenska, stærðfræði á fyrsta þrepi teljast ekki með til stúdentsprófs þ.e. í 203 eininga pakkanum.

Lokamarkmið raungreinabrautar:

Að loknu námi á raungreinabraut skal nemandi hafa hæfni til að 

  • afla sér upplýsinga, meta þær, vinna úr þeim og túlka þær
  • sýna frumkvæði og skapandi hugsun við lausnamiðað nám
  • efla eigin sjálfsmynd og nýta styrkleika sína
  • leita fullnægjandi raka fyrir skoðunum sínum og annarra
  • gera sér grein fyrir samfélagslegri ábyrgð sinni
  • taka þátt í lýðræðislegri samræðu og samstarfi
  • nálgast viðfangsefni sín og umhverfi á víðsýnan, umburðarlyndan og ábyrgan hátt
  • fjalla um og taka þátt í upplýstri umræðu um ýmis mál er tengjast samspili vísinda, tækni og samfélags
  • nýta sér góða almenna þekkingu á sviði náttúru- og raunvísinda og stærðfræði
  • beita aðferðum þeirra greina sem hann sérhæfir sig í og velja viðeigandi rannsóknaraðferð hverju sinni
  • takast á við frekara nám, einkum í heilbrigðisvísindum, náttúru- og raunvísindum, umhverfisvísindum, stærðfræði og tæknigreinum
Síðast uppfært 08. mars 2024