TMN102 - Tungumálanotkun 1

Í áfanganum er æfður almennur orðaforði í kjörmáli. Ekki er um beina tungumálakennslu að ræða, heldur er leiðbeint um orðanotkun, málfræði, efnistök og framburð. Nemendur eru þjálfaðir í málhópum eftir kjörmáli þar sem sérstök áhersla er lögð á sérorðaforða í samræmi við námsefni í námsáföngunum Atvinnuvegir (ATV101), Bókmenntir og listir (BOL102), Dýralíf (DÝR101), Gróður og náttúruvernd (GRN101), Íslandssaga (SAG101), Íslenska samfélagið (ÍSA101) og Jarðfræði (JAR102). Æfð er framsetning og frásagnartækni í viðkomandi tungumáli með hliðsjón af námskeiðinu Leiðsögutækni - samskipti (LES102). Kynnt eru helstu rit um Ísland á viðkomandi tungumáli og gerður er samanburður við heimalönd ferðamannanna. Lögð er áhersla á munnlega færni með raunhæfum verkefnum sem fjalla um mál sem leiðsögumenn þurfa að útskýra í starfi. Safnað er í orðalista í hverju tungumáli.

Markmið

Nemandi fái

  • talþjálfun
  • leiðbeiningar um frásagnartækni og framsetningu
  • þjálfun í sjálfstæðum vinnubrögðum í málhópum
  • raunhæf verkefni sem hann æfir sig í að flytja munnlega og blaðalaust á erlendu tungumáli
  • þjálfun í að útbúa stiklur sem nýtast í starfi
  • munnlegar æfingar í einstökum efnisþáttum kjarnagreinanna