BOL102 - Bókmenntir og listir

Í áfanganum er lagður grunnur að þekkingu á bókmenntum og listgreinum á Íslandi. Fjallað er um helstu skeið og stefnur í íslenskri bókmenntasögu. Sérstök áhersla er lögð á fornbókmenntir, s.s. Íslendingasögur og eddukvæði og það samfélag sem slíkar bókmenntir spruttu úr. Skoðuð eru tengsl bókmennta og samfélags í aldanna rás og staða þeirra í nútímasamfélagi. Kynntar eru helstu listgreinar, s.s. byggingarlist, myndlist, höggmyndalist, silfursmíði, útskurður, tónlist, leiklist, listdans og kvikmyndagerð. Lögð er áhersla á að sýna fram á tengsl listsköpunar á Íslandi við verkmenningu, siði og lífskjör þjóðarinnar. Jafnframt er fjallað um helstu söfn landsins og hvernig þau nýtast í ferðum um landið.

Markmið

Nemandi geti frætt um

  • innihald íslenskra fornbókmennta
  • munnlega geymd eddukvæða og dróttkvæða
  • íslenskt ritmál og fyrstu rit á íslensku
  • bókagerð og bókaútgáfu
  • Íslendingasögur, kenningar um tilurð og gildi þeirra fyrir Íslendinga
  • þýðingar og útgáfu Biblíunnar á íslensku
  • nútímabókmenntir
  • rímur og þátt þeirra í íslensku þjóðlífi
  • íslenskan heimilisiðnað
  • þróun helstu listgreina sem hér eru stundaðar, s.s. byggingarlist, myndlist, höggmyndalist, silfursmíði, útskurð, tónlist, leiklist, listdans og kvikmyndagerð
  • listahátíðir á Íslandi
  • kynningar á íslenskum listgreinum erlendis
  • tengsl verkmenningar og listsköpunar í tímans rás