Umsóknir

Almennt um námið í MK

MK er framsækinn menntaskóli í hjarta Kópavogs. Þar stundar fjöldi nemenda nám á bóknáms- og verknámsbrautum matvælagreina.

Boðið er upp á bóklegt nám til stúdentsprófs á félags- og hugvísindabraut, opinni braut, raungreinabraut og viðskipta- og hagfræðabraut. Fyrir nemendur sem þurfa að styrkja faglegan grunn fyrir frekara nám er boðið upp á framhaldsskólabrú. Þá er einnig boðið upp á starfsbraut fyrir nemendur á einhverfurófi.

Afrekssvið Menntaskólans í Kópavogi býður upp á kröfuhart nám með sveigjanleika fyrir metnaðarfullt íþróttafólk. Afrekssviðið opið íþróttafólki sem stundar íþrótt í skipulögðu íþróttastarfi undir handleiðslu þjálfara í félagi innan ÍSÍ og er námið einstaklingsmiðað eins og hægt er og unnið í nánu samstarfi við mörg íþróttafélög t.d. Breiðablik, Gerplu, HK, GKG o.fl. Nemendur á afrekssviði skrá sig á bóknámsbraut á afrekssviði.

Í matvælanámi geta nemendur á aldrinum 16-18 ára innritast í grunndeild matvæla- og ferðagreina sem er grunnnámsbraut fyrir frekara nám í matvælagreinum. Einnig er boðið er upp á samningsbundið iðnnám í bakstri, framreiðslu, kjötiðn og matreiðslu. Nemendur í matvælanámi geta eftir ákveðnu fyrirkomulagi lokið viðbótarnámi til stúdentsprófs. Nemendur ljúka því námi samhliða eða eftir að iðnnámi þeirra lýkur.

Nánari upplýsingar um brautirnar sem í boði eru í MK má finna á forsíðu heimasíðu skólans.

Sækja um skólavist í MK

Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur umsjón með innritun í framhaldsskóla og gefur út leiðbeiningar um frágang umsóknar. Sótt er rafrænt um skólavist á innritun.is

Umsækjendur nota rafræn skilríki eða veflykil sem 10. bekkingar fá afhentan í grunnskólum til að skrá sig inn á vefinn.

Inntökuskilyrði og úrvinnsla umsókna

Inntökuskilyrði í stúdentsnám

Almenn skilyrði til þess að hefja nám til stúdentsprófs eru að umsækjandi hafi fengið einkunnina A, B+ eða B í ensku, íslensku og stærðfræði við lok grunnskóla. Hafi umsækjandi einkunn undir því viðmiði (C+) getur viðkomandi innritast á stúdentsbraut en tekur áfanga á fyrsta þrepi í viðkomandi grein-/um. Reikna má með að námstími verði þá lengri en þrjú ár þar sem áfangar á fyrsta þrepi í kjarnagreinum teljast ekki til stúdentsprófs.

Inntökuskilyrði á framhaldsskólabrú

Umsækjandi með einkunnina C og D í a.m.k. tveimur kjarnagreinum (ensku, íslensku og stærðfræði) innritast á framhaldsskólabrú. Umsækjandi á framhaldsskólabrú getur einnig verið á afreksíþróttasviði skólans. Einungis er hægt að hefja nám á framhaldsskólabrú á haustin.

Inntökuskilyrði á afrekssvið

Skilyrði til þess að innritast á afreksíþróttasvið er að umsækjandi sé að æfa íþrótt í skipulögðu íþróttastarfi undir handleiðslu þjálfara. Meðmæli frá þjálfara þurfa að fylgja umsókn.

Umsækjendur skrá sig á bóknámsbraut með afrekssviði. Dæmi:

  • Íþróttaafrekssvið félags og hugvísindabraut AFFH
  • Íþróttaafrekssvið opin braut AFOP
  • Íþróttaafrekssvið raungreinabraut AFRG
  • Íþróttaafrekssvið viðskipta- og hagfræðabraut AFVH
  • Íþróttaafrekssvið framhaldsskólabrú ABRÚ

Inntökuskilyrði í grunndeild matvæla- og ferðagreina.

Umsækjendur skulu hafa lokið grunnskólaprófi eða ígildi þess. Til að hefja nám á 2. hæfniþrepi í kjarnagreinum, þarf umsækjandi að hafa náð hæfnieinkunn B við lok grunnskóla eða lokið fyrsta þreps áfanga í þeim greinum. Hafi umsækjandi einkunn undir því viðmiði (C+) getur hann innritast í grunndeild matvæla- og ferðagreina en tekur áfanga á fyrsta þrepi í viðkomandi grein/um.

Námið er ætlað 16-18 ára nemendum sem stefna að frekara námi í matvæla- og ferðagreinum. Nemendur sem hafa nýlokið grunnskóla ganga fyrir við innritun.

Inntökuskilyrði í matvælanám (bakstur, framreiðslu, matreiðslu, kjötiðn)

Umsækjendur skulu hafa lokið grunnskólaprófi eða ígildi þess. Til að hefja nám á brautinni þurfa umsækjendur að vera á námssamningi í viðkomandi iðngrein. Til að hefja nám á 2. hæfniþrepi í kjarnagreinum, þarf umsækjandi að hafa náð hæfnieinkunn B við lok grunnskóla eða lokið fyrsta þreps áfanga í þeim greinum. Hafi umsækjandi einkunn undir því viðmiði getur hann innritast í iðnnám en tekur áfanga á fyrsta þrepi í viðkomandi grein/um. Sjá nánari upplýsingar um inntökuskilyrði og ferilbók hér.

Inntökuskilyrði á sérnámsbraut

Sérnámsbrautin er ætluð nemendum sem hafa notið verulegrar sérkennslu í grunnskóla, fengið kennslu í námsveri, sérdeild eða sérskóla. Námið er ætlað nemendum sem ekki geta nýtt sér almenn námstilboð framhaldsskóla en þurfa sérhæft einstaklingsmiðað nám er mætir færni þeirra og áhuga.

Úrvinnsla á umsóknum nýnema (grunnskólanemenda)

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu hefur sett fram töflu sem auðveldar skólum að reikna út stigafjölda fyrir hvern og einn umsækjanda, sbr. mynd hér að neðan.

Þetta er eingöngu gert til að flýta fyrir úrvinnslu umsókna. Athugið að frá og með innritun vorið 2024 verður tvöfalt vægi á einkunnum í íslensku og stærðfræði.

Skólinn innritar 250 nýnema (þ.e. nemendur sem koma beint úr grunnskóla) á hverju hausti. Þar af innritast 166 nemendur á stúdentsprófsbrautir, 36 nemendur á framhaldsskólabrú og 48 nemendur í grunndeild matvæla- og ferðagreina. Af þessum 250 nemendum eru u.þ.b. 90 nemendur teknir inn á afreksíþróttasvið.

Val úr stórum hópi umsækjenda byggir að mestu á samanburði einkunna þar sem þær eru umreiknaðar í stig, sbr. mynd hér að ofan. Umsækjendur með flestu stigin í ensku, íslensku og stærðfræði eru í forgangi.

Dæmi um umsækjanda með einkunnirnar:

  • Enska A = gefur 4 stig = 4
  • Íslenska B+ = gefur 3,75 stig (tvöfalt vægi) = 7,5
  • Stærðfræði B = gefur 3 stig (tvöfalt vægi) = 6
  • Þessi umsækjandi er þá með 17,5 stig

Komi til þess að velja þurfi á milli umsækjenda ganga þeir fyrir sem:

  1. hafa flest stig í Norðurlandamáli,
  2. búa í Kópavogi,
  3. sækja um á afrekssviði skólans og geta framvísað meðmælum frá íþróttafélagi.
  4. hafa flest samanlögð stig í náttúrufræði og samfélagsfræði.

Úrvinnsla á umsóknum á afreksíþróttasvið:

Á hverju hausti eru u.þ.b. 90 nemendur innritaðir á afreksíþróttasvið.

Val á umsækjendum á afreksíþróttasvið byggir á einkunnum sbr. inntökuskilyrði á stúdentsbrautir auk meðmæla frá íþróttafélagi.

Ef meðmæli vantar er umsókn á afreksíþróttasvið ekki tekin til umfjöllunar. Umsækjandi gæti hins vegar verið tekinn til greina á aðrar námsbrautir.

Mat á fyrra/öðru námi

Þegar nemandi innritast í MK með námsferil úr öðrum framhaldsskóla, sem starfar skv. aðalnámskrá framhaldsskóla, eru þeir áfangar sem hann hefur lokið með fullnægjandi árangri metnir svo framarlega sem þeir eru skilgreindur hluti af þeirri braut sem hann innritast á. Nemandi getur ýmist fengið áfanga metna fyrir sambærilega áfanga í MK eða ef ekki er til sambærilegur áfangi í MK fær nemandinn einingarnar metnar í stað valáfanga að því marki sem nemur valgreinakvóta viðkomandi brautar. Innheimt er gjald fyrir mat á öðru námi.

Tekið er tillit til sérreglna þess skóla sem nemandinn kemur frá í atriðum sem kunna að hafa áhrif á einingastöðu nemandans. Nám úr öðrum skólum er metið með einkunn, þ.e. einkunn flyst með nemandanum og er auðkennt með stjörnu (*) í INNU og á útskriftarskírteini.

Nemandi sem stundar fjarnám og/eða nám í sumarskóla jafnhliða námi í MK þarf að fá skriflegt samþykki áfangastjóra/námsstjóra/ námsráðgjafa skólans áður en hann skráir sig, t.d. með tölvupósti. Einnig ber hann ábyrgð á að fylgja því eftir að þeir áfangar sem hann lýkur þannig verði fluttir í námsferil.

Mat á námi úr erlendum skólum er skoðað sérstaklega í hverju tilfelli fyrir sig. Nemendi sem hefur verið búsettur erlendis og verið í námi á sambærilegu stigi getur fengið það nám að einhverju leyti metið. Það er mikilvægt að nemandi framvísi gögnum sem sýna hvaða námi hann hefur verið í, einkunnum, lengd náms og kennsluáætlunum.

Nemandi sem hefur dvalið erlendis sem skiptinemi á vegum AFS, Rótarý o.fl. getur fengið allt að 15 einingum á fyrsta þrepi í frjáls val, framvísi hann viðurkenndu skjali frá skiptinemasamtökunum.

Nemandi sem hefur búið erlendis eða verið í skiptinámi getur tekið stöðumat í eftirfarandi tungumálum: dönsku, ensku, frönsku, spænsku, þýsku. MK býður upp á stöðupróf fyrsta kennsludag á haustönn og vorönn. Greitt er fyrir stöðupróf samkvæmt gildandi gjaldskrá skólans hverju sinni.

Hámarkseiningafjöldi sem nemendur geta fengið í stöðupróf eru:

Danska : 10 einingar
Enska: 15 einingar
Önnur mál : 20 einingar

Mat á öðru námi:

Tónlistarnám (TÓNL): 10 einingar á öðru hæfniþrepi hafi nemandi lokið miðprófi á hljóðfæri og í tónfræðigreinum.

Listdansnám (LDSK): 10 einingar á öðru hæfniþrepi stundi nemandi listdansnám hjá viðurkenndum listdansskóla. Fari nemandinn upp á þriðja þrep í listdansnáminu getur hann sótt um að fá einn áfanga á því þrepi metinn.

Flugnám (FLUG): 10 einingar á þriðja hæfniþrepi fyrir bóklega hlutann og 5 einingar fyrir verklega hlutann á þriðja hæfniþrepi. Nemandi þarf að skila inn skírteini frá Samgöngustofu fyrir bæði bóklega og verklega hlutann.

Knapamerki (KNAP):

  • Nemandi getur fengið eitt knapamerki metið í stað einnar íþróttaeiningar.
  • Nemandi sem lýkur þremur knapamerkjum fær 5 einingar á fyrsta þrepi. Nemandi skilar inn staðfestingu frá Háskólanum að Hólum.

Þjálfaranámskeið KSÍ (UEFA): 150 klukkustunda námskeið á vegum KSÍ er metið til 5 eininga á fyrsta hæfniþrepi.

Dale Carnegie (DALE): Nemandi sem lýkur námskeiði á vegum Dale Carnegie, eða hjá sambærilegum aðila, fær 2 einingar á fyrsta hæfniþrepi uppfylli námskeiðið kröfur um tímafjölda. Nemandi þarf að skila inn staðfestingu frá námskeiðshaldara.

Landsbjörg (BJÖR): Björgunarmaður 1 gefur 5 einingar á fyrsta hæfniþrepi. Nemandi þarf að ljúka öllum þáttum til að geta fengið metið og skila inn staðfestingu frá Landsbjörg.

Fyrsta hjálp 1 (SKYN):1 eining á öðru hæfniþrepi fyrir 20 klst námskeið hjá Landsbjörg (lágmarkseinkunn = 7)

Sjúkraflutninganám (SJÚK): Nemandi sem lýkur námi í sjúkraflutningum fær 5 einingar á öðru hæfniþrepi og 5 einingar á þriðja hæfniþrepi. Nemandi þarf að skila inn staðfestingu frá Sjúkraflutningaskólanum

Iðnnám í matvælagreinum: Nemandi sem lýkur samningsbundnu námi í matvælagreinum (bakstri, framreiðslu, kjötiðn eða matreiðslu) fær nám sitt að fullu metið í frjálst val á matvælabraut til stúdentsprófs.

Um námsmat sjá áfangastjórar og námsstjóri.

Síðast uppfært 04. febrúar 2026