ENSK3CD05 - Enskar kvikmyndir - Tjáning og túlkun
Nemendur þjálfast bæði í að tala og skilja ensku í gegnum kvikmyndir og umræður. Áhersla lögð á að efla orðaforða nemenda til að tjá og rökstyðja skoðanir sínar
Horft verður á fjölbreytt úrval kvikmynda, bæði í kennslustundum og sem heimavinna. Gætt verður að því að nemendur hafi gott aðgengi að kvikmyndum sem valdar eru. Áhersla lögð á umræður í kennslustundum.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- Ensku tungumáli og hvernig því er beitt í kvikmyndum og daglegri notkun.
- Fjölbreyttum kvikmyndum og viðfangsefni þeirra.
Mikilvægi gagnrýninnar hugsunar þegar horft er á og rætt um fjölbreytt efni.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- Tjá sig með skýrum og nákvæmum hætti um flókin málefni
- Skilja talað mál í kvikmyndum og í umræðum í tímum.
Greina ólíkar tegundir kvikmynda og hefðir þeirra.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- Ræða fjölbreytt málefni og tjá sýnar skoðanir.
- Tjá sig á skýran og málefnalegan hátt.
- Beita gagnrýnni hugsun þegar hann horfir á kvikmyndir eða annað efni.
- Rýna í og skilja betur þær kvikmyndir sem hann horfir á.
Undanfari: ENSK3CA05
Námsmat: Sjá kennsluáætlun