FÉLA3CD05 - Hjálparstarf og þróunarsamvinna
Í áfanganum verður fjallað um hjálparstarf, þróunarsamvinnu og mannréttindi víða um heim. Nemendur kynnast ólíkum tegundum hjálparstarfs og fá að taka þátt í hjálparstarfi innanlands í samvinnu við Rauða krossinn. Fjallað verður um nokkur grunnhugtök og kenningar sem tengjast hjálparstarfi, eins og þróunarlönd, þriðji heimurinn, fátækt, neyðaraðstoð, flóttamannaaðstoð og þróunarsamvinna, og þau skoðuð með gagnrýnum hætti. Nemendur fá innsýn í mismunandi aðstæður fólks í heiminum og fræðast um orsakir og afleiðingar félagslegrar lagskiptingar og misskiptingar auðs og lífsgæða í heiminum. Jafnframt munu nemendur fræðast um leiðir til úrbóta þannig að allir jarðarbúar geti framfleytt sér á sjálfbæran og umhverfisvænan hátt.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- Helstu grunnhugtökum sem tengjast hjálparstarfi eins og þróun, fátækt, þróunarlönd, þriðji heimurinn og suðrið og hvers vegna hugtökin þykja umdeild.
- Ólíkum tegundum hjálparstarfs í heiminum eins og flóttamannaaðstoð, neyðaraðstoð og þróunarsamvinnu.
- Félagslegri lagskiptingu, sjálfbærni og mannréttindum.
- Verkefnum sem tengjast hjálparstarfi innanlands.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- Skoða hjálparstarf í sögulegu samhengi og greina áherslubreytingar á undanförnum árum.
- Afla upplýsinga og fjalla um hjálparstarf innan lands og utan á gagnrýnin hátt.
- Skoða umræðu í fjölmiðlum um hjálparstarf og flóttafólk og setja í fræðilegt samhengi.
- Miðla fræðilegu efni bæði munnlega og skriflega og þjálfa sig í vandaðri heimildaöflun.
- Taka þátt í hjálparstarfi innanlands á sjálfstæðan og ábyrgan hátt.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- Bera saman hugtök og kenningar um hjálparstarf og metið styrkleika þeirra og veikleika.
- Draga ályktanir um hjálparstarf innan lands og á alþjóðavettvangi og metið réttmæti þess og gæði meðal annars út frá eigin þátttöku og upplýsingaöflun.
- Átta sig á afleiðingum misskiptingar auðs og lífsgæða í heiminum meðal annars í tengslum við fjölgun flóttamanna og umhverfisvandamál sem snerta okkur öll.
- Læra að bera virðingu fyrir ólíkum íbúum jarðarinnar og fræðast um mikilvægi þess að nýta sameiginlegar auðlindir okkar á sjálfbæran og umhverfisvænan hátt.
Undanfari: FÉLA2BA05