GEBE1AA03 - Gettu betur – spurningakeppni og almenn vitneskja
Áfanginn er fyrir alla sem hafa áhuga á að auka við þekkingu sína á hinum ýmsu sviðum og þá sem langar til að taka þátt í spurningarkeppni framhaldsskólanna, Gettu betur. Nemendur eru þjálfaðir í að tileinka sér nýja þekkingu, fylgjast með málefnum leiðandi stundar og leita að markverðum staðreyndum og ýmislegu sem mannkynið hefur mótað, fundið upp eða komist að í gegnum tíðina. Nemendur keppa sín á milli og þeir þjálfaðir til að taka þátt í Gettu betur.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- spurningagerð bæði ístuttu og löngu formi
- ýmsum fræðasviðum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að :
- búa til markvissar spurningar sem henta í spurningaleiki
- afla upplýsinga bæði á veraldarvefnum og í bókum
- svara spurningum hratt og vel
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- öðlast sjálfstraust til að taka þátt í spurningakeppni
- setja saman spurningaleiki og sjá um framkvæmd þeirra
- meta menntunargildi spurningaleikja
Undanfari: Enginn
Námsmat: Sjá kennsluáætlun