Í þessum áfanga fá nemendur kynningu á gervigreind (spunagreind) og notkun hennar bæði í námi, starfi og daglegu lífi. Nemendur fá þjálfun í notkun mismunandi verkfæra sem boðið er upp á, til dæmis við útskýringar á hugtökum og glósugerð. Nemendur þróa gagnrýna hugsun og kynna sér siðferðisleg málefni hvað varðar gervigreind og notkun hennar. Lögð er áhersla á skapandi verkefni og umræður í tímum.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- Gervigreind, sögu og uppruna hennar.
- Notkun gervigreindar, í daglegu lífi, námi og starfi.
- Takmörkun gervigreindar og mikilvægi gagnrýninnar hugsunar.
- Siðferðislegum málefnum gervigreindar og áhrifum í nútíð og framtíð.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- Nota gervigreindarverkfæri á ábyrgan hátt.
- Móta spurningar og samhengisramma til að vera í skilvikum samskiptum við gervigreind.
- Taka þátt í umræðum og miðla þekkingu sinni á álitaefnum gervigreindar.
- Vinna verkefni í samstarfi við gervigreind.
- Meta hvaða gervigreindarverkfæri er best að nota að hverju sinni.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að :
- Hafa gagnrýna hugsun í fyrirrúmi þegar gervigreind er notuð bæði í námi og starfi.
- Taka þátt í umræðum um framtíð gervigreindar og samfélagsleg áhrif hennar.
- Geta nýtt gervigreind á uppbyggilegan hátt með því að setja fram skýrt samhengi og spurningar sem skila sem bestum niðurstöðum.
Undanfari: Enginn
Námsmat: Sjá kennsluáætlun