HEIM2BA05 - Inngangur að heimspeki
Í þessum inngangs áfanga að heimspeki verður fjallað um grunnhumyndir og spurningar heimspekinnar sem hafa mótað viðhorf mannsins. Farið verður yfir nokkra af áhrifamestu heimspekingum sögunnar og hugmyndum þeirra. Nemendur munu fá að kynnast helstu undirgreinum heimspekinnar svo sem siðfræði og rökfræði. Áhersla verður lögð á glímu nemenda við efnið og að þau notfæri sér og þjálfi gagnrýna og heimspekilega hugsun og þori að skoða allar hliðar máls.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- helstu undirgreinum heimspekinnar og átti sig á muninum á þeim
- nokkrum af áhrifamestu heimspekingum sögunnar og hugmyndum þeirra
- grunnhugtökum rökfræðinnar og þekki helstu rökvillur
- mikilvægi þess að skoða allar hliðar máls.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- greina einfaldar röksemdarfærslur og meta gildi þeirra, þekkja algengar rökvillur hjá sér og öðrum
- beita grunnhugmyndum heimspekinnar til að nálgast og glíma við ný viðfangsefni og spurningar
- beita gagnrýninni hugsun við lausn eða útskýringu á heimspekilegum viðfangsefnum
Taka þátt í heimspekilegum samræðum og bregðast við sjónarmiðum annarra af yfirvegun.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- vera gagnrýninn á mál og viðfangsefni sem hann fæst við í daglegu lífi
- geta beitt gagnrýninni hugsun á markvissan hátt
- geta tjáð skoðanir sínar á rökstuddan hátt í ræðu og riti
- skilja mikilvægi þess að beita heimspekilegri hugsun við úrlausn vandamála.
Undanfari: Enginn.
Námsmat: Sjá kennsluáætlun.