Leiðsöguskólinn

Innritun fyrir skólaárið 2026 - 2027 stendur yfir. Nánari upplýsingar um námið gefur fagstjóri Leiðsöguskólans í síma 594 4025. Einnig er hægt að senda póst á netfangið Lsk@mk.is

Senda  tölvupóst

Leiðsöguskólinn hefur starfað frá árinu 1976 og hafa á þessum árum um 1.600 leiðsögumenn útskrifast frá skólanum. Námið er bæði víðfeðmt og fjölbreytt og mikil áhersla er lögð á verklegar æfingar þannig að nemendur séu sem best undirbúnir undir að leiðsegja erlendum ferðamönnum um Ísland að námi loknu.

Námskrá í Almennri leiðsögn er vottuð af BSI á Íslandi - námskráin er í samræmi við Evrópustaðalinn ÍST EN 15565:2008

Fjallað er m.a. um jarðfræði Íslands, sögu og menningu, gróður, dýralíf, atvinnuvegi og íslenskt samfélag sem og bókmenntir og listir. Nemendur eru fræddir um helstu ferðamannastaði á Íslandi, ferðamannaleiðir, náttúruvernd, umhverfismál, öryggismál og leiðsögutækni. Fyrirlesarar, kennarar og leiðbeinendur eru allir sérfróðir um einstaka málaflokka.