Skólagjöld fyrir skólaárið 2025-2026 eru 340.000 kr. fyrir hvora önn fyrir nemendur sem eru í fullu námi.
Kostnaður vegna vettvangsferða er innifalinn en nemendur greiða sjálfir fyrir mat í ferðum. Námsgögn eru ekki innifalin í skólagjöldum.
Þeir nemendur sem ekki eru í fullu námi greiða 12.500 krónur fyrir hverja einingu sem þeir eru skráðir í, auk 6.000 kr innritunargjalds á önn.
Inntökupróf í erlendum tungumálum kosta 10.000 krónur.