Leiðsöguskólinn hefur starfað frá árinu 1976 og hafa á þessum árum um 1.600 leiðsögumenn útskrifast frá skólanum. Námið er bæði víðfeðmt og fjölbreytt og mikil áhersla er lögð á verklegar æfingar þannig að nemendur séu sem best undirbúnir undir að leiðsegja erlendum ferðamönnum um Ísland að námi loknu.
Námskrá í Almennri leiðsögn er vottuð af BSI á Íslandi - námskráin uppfyllir Evrópustaðalinn ÍST EN 15565:2008