Upplýsingar um nám

Leiðsögunám er 60 eininga námsbraut á 4. hæfniþrepi. Hefðbundinn námstími er eitt ár í fullu námi en nemendur geta dreift því á tvö ár. Allir nemendur taka sameiginlegan kjarna sem er 35 einingar og samanstendur af 12 áföngum. Að honum loknum velja nemendur sér kjörsvið sem er 25 einingar. Miðað er við að nemendur séu skráðir í að minnsta kosti 8 einingar á önn.

Kjarnafög eru m.a. jarðfræði Íslands, Íslandssaga, bókmenntir og listir, gróðurfar, dýralíf, atvinnuvegir, íslenskt samfélag, Fyrsta hjálp og leiðsögutækni sem og tungumálanotkun en í þeim áfanga æfa nemendur sig í að segja frá efni bóklegu faganna. Á vorönn fá nemendur fræðslu um helstu ferðamannastaði á Íslandi, ferðamannaleiðir, náttúruvernd, umhverfismál, öryggismál og leiðsögutækni. Nemendur í gönguleiðsögn fræðast um helstu göngusvæði landsins, hópstjórn, ferðamennsku og rötun sem og ferðamennsku á jöklum og fá meiri fræðslu í Fyrstu hjálp.

Fyrirlesarar, kennarar og leiðbeinendur eru allir sérfróðir um einstaka málaflokka.

Í upphafi annar er gefið út skóladagatal þar sem skipulag kennslu, prófa og námsferða er tilgreint. Útskrift fer fram árlega að vori. 

Síðast uppfært 27. mars 2026