Grunnþættir og lykilhæfni

Námshæfni

Námsráðgjafar koma í upphafi hvers skólaárs og leiðbeina nemendum um námstækni og annað sem getur ýtt undir námshæfni þeirra. Nemendur hafa aðgang að námsráðgjöfum meðan á námi stendur.

Nemendur þurfa að nota fjölbreytt gögn í náminu og fá kennslu í heimildaleit og meðferð upplýsinga.Nemendur fá haldgóða þekkingu á íslenskum ferðamannastöðum, afþreyingu og þjónustu fyrir ferðamenn.

Nemendur læra að þekkja eigin styrkleika og veikleika og setja sér raunhæf markmið sem og temja sér góð vinnubrögð s.s að leita réttra upplýsinga þegar nauðsyn ber til og leita til fagaðila þegar þörf er á.

Í leiðsögunámi er áhersla lögð á sjálfstæð vinnubrögð og að leiðsögumenn viðhaldi færni, hæfni og þekkingu til að sinna starfinu.

 

Skapandi hugsun og hagnýting þekkingar

Í leiðsögunámi reynir á frumkvæði og skapandi hugsun. Við pistlagerð þufa nemendur að hagnýta þekkingu sína úr öllum áföngum í kjarnafögum námsins sem og svæðalýsingaráföngum. Svo pistlarnir verði áhugaverðir þarf skapandi og agaða hugsun og góða framsetningu á efninu.

Mikil áhersla er lögð á að nemendur þekki hugsanlegar hættur fyrir ferðamenn á Íslandi og upplýsi þá áður en komið er á þekkt hættusvæði og geti brugðist við óvæntum breytingum á aðstæðum og/eða í vinnuumhverfi. Geti brugðist við með faglegum hætti, tekið frumkvæði þegar nauðsyn ber til og tekið sjálfstæðar ákvarðanir þegar þörf er á. Einnig að nemendur viti hvaða búnaður er nauðsynlegur í hverri ferð og kunni meðferð á honum og geti veitt fyrstu hjálp.

Nemendur þurfa að geta les úr staðarveðurspám og þekkja áhrif landslags á veður.

 

Jafnrétti

Í skólastarfinu er lögð áhersla á jafnrétti, byggt er á jafnréttisstefnu og jafnréttisáætlunmenntastofnunar.

Í leiðsögunámi er fjallað um mikilvægi þess að virða mismunandi þarfir ferðamanna, uppruna þeirra, menningu og trúarbrögð og að komið sé fram af virðingu við alla ferðamenn.

 

Menntun til sjálfbærni

Í leiðsögunámi er lögð áhersla á sjálfbærni og sjálfbæra hugsun. Markmiðið er að nemendur stundi ábyrga ferðamennsku og verði ferðamönnum góð fyrirmynd við leiðsögn, sérstaklega á viðkvæmum svæðum í náttúru Íslands s.s. á helgunarsvæðum dýra og plantna og leggi sig fram um að ferðast með ferðamenn án ummerkja.

Nemendur þekki lög og reglugerðir um náttúruvernd og mismunandi flokka friðunar á Íslandi.

Nemendur geti sagt frá samspili náttúru og manns í íslenskri náttúru m.t.t. gróðureyðingar og uppgræðslu sem og vernd og friðun náttúru og menningarminja. Einnig að segja frá markmiðum friðunar og áhrifum ferðamennsku á náttúru Íslands.

 

Læsi, tjáning og samskipti á ensku/íslensku

Í leiðsögunámi er mikil áhersla lögð á læsi heimilda og upplýsinga sem og túlkun gagna. Einnig að nemendur geri eigin pistla um fyrirfram ákveðin efni sem tengjast áföngum námsins s.s. samfélag fyrr og nú, menningu, náttúru og landafræði Íslands.

Uppbygging pistla er kennd og hvernig hægt er að gera þá áhugaverða, innihaldsríka og skemmtilegafyrir ferðamenn m.t.t. innihalds og framsetningu á efni þannig að ferðamaðurinn eigi auðvelt með að skilja og tengja við það. Nemendur þurfa að kunna viðeigandi fagorð og hugtök.

Nemendur þjálfast í að flytja pistlana sína blaðlaust. Ítrekað er mikilvægi þess að gefa jákvæða mynd af landi og þjóð og stuðla að jákvæðri upplifun ferðamanna af Íslandsheimsókn.

Nemendur þurfa að geta flutt pistla á sínu kjörmáli (tungumál í leiðsögn)uppfylltum kröfum C1 skv. samevrópska tungumálarammanum.

Nemendur sem hafa ekki íslensku sem móðurmál þurfa að geta tjáð sig sig og átt samskipti á íslensku eða ensku að uppfylltum kröfum B2 skv. samevrópska tungumálarammanum.

 

Læsi, tjáning og samskipti um tölur og upplýsingar

Í áfanganum Atvinnuvegir er fjallað um tölulegar staðreyndir í atvinnulífi íslendinga og nemendum kennt að setja þær í samhengi. Í áfanganum Íslenskt samfélag er farið yfir grundvallartölfræði í íslensku samfélagi s.s. mannfjöldaþróun, fjölda í trú- og lífsskoðanir, meðallífslíkur, skattamál, húsnæðismál, tryggingamál.

Í mörgum áföngunum er unnið með tölur og tölfræði þar sem nemendum er kennt að túlka og setja í samhengi ýmsar tölulegar staðreyndir sem eiga við Ísland þannig að ferðamenn skilji.

 

Heilbrigði

Kennt er hvernig nota skal röddina þannig að ekki hljóti skaði af. Einnig góð líkamsbeiting við leiðsögn og rétt notkun hljóðnema.

Lögð er áhersla á heilsusamlegt líferni í samhengi við útivist og hreyfingu.

Nemendur læra að þekkja sín mörk og hæfni og að taka meðvitaðar ákvarðanir um að stofna hvorki sér né öðrum í hættu.

Lögð er áhersla á jákvæðni og hvatningu í samskiptum, bæði í samskiptum nemenda og kennara sem og í samskiptum nemenda innbyrðis.

 

Lýðræði og mannréttindi 

Lagt er fyrir nemendur að eiga góð og uppbyggileg samskipti við alla samskiptaaðila s.s. starfsmenn ferðaskrifstofa, bílstjóra og aðra ferðaþjónustuaðila sem og farþega. Nemendur fá leiðbeiningar um hvernig gott er að bera sig að við hópstjórn svo allir í ferðahópnum fái notið sín.

Brýnt er fyrir nemendum að taka tillit til mismunandi uppruna, menningar, lífs- og trúarskoðana og sérþarfa ferðamanna. Einnig að vinna samkvæmt siðareglum ferðaskipuleggjanda hverju sinni og sýna þjónustulund og heiðarleika í sínum störfum.

Fjallað er um lög og réttindi er varða störf leiðsögumanna sem og réttindi neytenda.

Leiðsögumenn eru fulltrúar íslensku þjóðarinnar gagnvart erlendum ferðamönnum og þurfa að hafa í huga mikilvægi lýðræðis og mannréttinda á Íslandi í nútíma og sögu þjóðarinnar.

Síðast uppfært 30. júní 2025