Gönguleiðsögn - Vorönn

Nemendur fá kennslu og þjálfun í að fara með ferðamenn í lengri og styttri gönguferðir en einnig fá þeir þjálfun í leiðsögn í rútu. Nemendur fara í sólarhrings rötunarferð, helgarnámskeið í vetrarferðamennsku og ferðamennsku á jöklum (ath nemendur þurfa sjálfir að koma sér á námskeiðsstað) auk æfingar í að vaða straumvötn. Nemendur fara í nokkrar gönguferðir á eigin vegum. Náminu lýkur með 5 daga bakpokagönguferð um óbyggðir þar sem nemendur skiptast á að leiðsegja. Í ferðinni er gist í tjöldum.

Nemendum í gönguleiðsögn er eindregið ráðlagt að taka skyndihjálparnámskeiðið Wilderness First Responder.

Þeir sem hyggjast stunda nám í gönguleiðsögn þurfa að hafa mikla reynslu af gönguferðum um óbyggðir og vera í góðu líkamlegu formi.

 

Áfangar sem tilheyra gönguleiðsögn

Heiti áfanga (einingar) Skammstöfun áfanga

Samtals 20 einingar

Síðast uppfært 11. mars 2024