Í áfanganum er farið yfir undirstöðuatriði skyndihjálpar, hin fjögur skref; tryggja öryggi, athuga viðbrögð, meta ástand slasaðra eða sjúkra, sækja hjálp og veita skyndihjálp. Farið er yfir þá samfélagslegu og lagalegu skyldu að einstaklingurinn þurfi að bregðast við í neyðartilfellum, hvernig sé unnið úr streitu í neyðartilfellum ofl. Farið er yfir grunnendurlífgun og sjálfvirkt hjartastuðtæki og verkleg endurlífgun kennd. Einnig verður hliðarlega sýnd og æft verður losun aðskotahlutar úr öndunarvegi. Farið verður yfir helstu bráða sjúkdóma og farið yfir einkenni og rétt viðbrögð til að bregðast við þeim. Einnig verður yfirferð yfir höfu-, háls og hryggáverka og rétta meðferð við beina-, liðamóta og vöðvaáverkum. Farið verður yfir hvernig stöðva skuli blæðingu og bruna og rétt meðferð kennd, sagt frá ofkælingu, hitaslagi og drukknun. Einnig er gert grein fyrir björgun og flutningi slasaðra af slysstað og í hvaða tilfellum þurfi að færa slasaða einstaklinga.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að: