Skiptir máli hvort nemendur séu með Apple (Mac) tölvu eða PC?
Nei það skiptir ekki máli en nánari leiðbeiningar og góð ráð um tölvukaup sem gott er að skoða, má finna hér.
Hver eru skólagjöldin?
Skólagjald er mismunandi eftir brautum. Allir nemendur þurfa að greiða fyrir leigu á skáp þar sem þess er krafist að allir nemendur og starfsmenn skólans geymi útiskó í skóskáp á skólatíma. Allar nánari upplýsingar um hin ýmsu gjöld og hvað er innifalið í þeim, má sjá hér.
Hvað með félagslífið?
Nemendafélag Menntaskólans í Kópavogi – NMK, heldur úti öflugu félagslífi og mikil áhersla er lögð á að virkja nemendur til þátttöku. Undir hatti þess má finna ýmsar nefndir og félög eins og skemmtinefnd, íþróttanefnd, fjölmiðlanefnd, myndbandsnefnd, spilanefnd og leikfélagið svo fátt eitt sé nefnt. Nemendafélagið stendur fyrir ýmsum uppákomum innan og utan skóla og heldur böll og árshátíð. Meiri upplýsingar má finna hér.
Er aðstaða í skólanum til þess að læra?
Já bókasafn skólans er nýuppgert og vel búið. Þar er pláss fyrir yfir 100 nemendur og góð vinnuaðstaða hvort sem nemendur eru í einstaklings- eða hópavinnu. Á bókasafninu geta nemendur fengið aðstoð við að finna og meta heimildir, heimildaskráningu, málfar, stafsetningu. Þar geta nemendur ennfremur prentað út úr sínum tölvum og ljósritað. Hér má finna leiðbeiningar um hvernig á að tengjast prentaranum.
Bókasafnið er opið sem hér segir:
mánudagar 8:00-16:30
Þriðjudagur-fimmtudagur 8:00-16:00
Föstudagur 8:00-14:00
Get ég keypt mat í skólanum?
Já. Mötuneyti skólans er opið frá kl. 8:00 á morgnana til kl. 15:30 alla daga nema á föstudögum en þá er lokað kl. 14:00. Í mötuneytinu er alfarið sjálfsafgreiðsla og einungis er hægt að greiða með kortum.
Boðið er upp á heitan mat í hádeginu alla virka daga og er allur matur útbúinn á staðnum undir handleiðslu matreiðslumeistara. Til að vinna gegn matarsóun er maturinn seldur eftir vigt. Nemendur fá sér sjálfir á disk og greiða eftir vigt. Hver 400 gr kosta 1350 kr. Matseðill komandi viku er birtur á forsíðu mk.is á föstudögum. Í mötuneytinu eru einnig seld smurð rúnstykki, pastasalat, mjólkurvörur og fleira.
Á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum frá kl. 8:00 til kl. 8:30, er boðið upp á hafragraut án endurgjalds fyrir nemendur skólans.
Kaffi og vatn er frítt en nemendur þurfa að koma með eigin margnota bolla og/eða brúsa þar sem ekki eru bollar eða glös á staðnum.
Er horft til mætingareinkunnar úr grunnskóla þegar valið er inn í skólann?
Nei við skoðum ekki mætingareinkunn. Byrjað er á að skoða einkunnir í íslensku, stærðfræði og ensku og nemendum raðað eftir þeim. Ef til þess kemur að margir umsækjendur eru enn jafnir þá skoðum við aðrar einkunnir. Sjá nánar úrvinnslu á umsóknum hér.
Þurfa nemendur að greiða sérstaklega fyrir að setja Office pakkann upp á tölvunum sínum?
Nei, allir nemendur fá frían aðgang að Office – pakkanum
Er tekið tillit til þess við inntöku í skólann að nemandi sé með annað móðurmál en íslensku?
Já, nemendur sem hafa tekið áfanga í íslensku sem annað mál fá hann metinn í stað hefðbundins íslenskuáfanga. Einkunn úr þeim áfanga gildir til útreikninga við röðun á sama hátt og íslenska. Ath: það er auðvitað allt nám á íslensku í skólanum þannig að nemendur verða að geta bjargað sér á íslensku.
Er skólahjúkrunarfræðingur í MK?
Já, nemendur hafa aðgang að skólahjúkrunarfræðingi í skólanum sér að kostnaðarlausu. Tímabókanir hér.
Hafa nemendur aðgang að skólasálfræðingi í MK?
Já, sálfræðingur er starfandi við skólann sem veitir nemendum skólans sálfræðiþjónustu þeim að kostnaðarlausu. Tímabókanir hér.
Hvað þarf ég að taka mörg fög á önn til að útskrifast á þremur árum?
Stúdentsprófið er 202 einingar og 203 einingar fyrir þá sem eru á afrekssviði. Til þess að ljúka námi á sex önnum þurfa nemendur að taka u.þ.b. 30-32 einingar í þrjár annir á námstímanum og 35-37 einingar í þrjár annir á námstímanum. Þetta eru 6-7 fimm eininga áfangar á önn auk VERA og ÍÞRÓ.
Er hægt að komast inn í skólann eftir að hafa verið í öðrum framhaldsskóla í einhverjar annir eða lokið áföngum í fjarnámi?
Já. Þá eru þeir áfangar sem hann hefur lokið með fullnægjandi árangri í öðrum skólum metnir svo framarlega sem þeir eru skilgreindur hluti af þeirri braut sem hann innritast á. Nemandi getur ýmist fengið áfanga metnaJ fyrir sambærilega áfanga í MK eða ef ekki er til sambærilegur áfangi í MK fær nemandinn einingarnar metnar í stað valáfanga að því marki sem nemur valgreinakvóta viðkomandi brautar. Innheimt er gjald fyrir mat á öðru námi.
Er hægt að falla á mætingu í áfanga?
Nei það er ekki hægt að falla á mætingu í áfanga en mæting og tímaverkefni geta hins vegar gilt til einkunna og þarf að skoða kennsluáætlun í hverjum áfanga fyrir sig. Mæting í kennslustundir er hins vegar forsenda þess að ganga vel og því mikilvægt að sinna náminu vel.
Er hægt að fá lánaða fartölvu í skólanum ef ég gleymi minni heima?
Já, á bókasafni skólans er hægt að fá lánaðar fartölvur en einungis í eina kennslustund í senn.
Get ég skipt um hóp í áfanga t.d. til að vera með vini eða þar sem tími hentar betur?
Nei ekki er hægt að færa sig á milli hópa í áfanga.
Hvað er afreksíþróttasvið?
Afrekssvið Menntaskólans í Kópavogi býður upp á kröfuhart nám til stúdentsprófs með sveigjanleika fyrir metnaðarfullt íþróttafólk. Skilyrði fyrir þátttöku er að nemandi sé að æfa íþrótt í skipulögðu íþróttastarfi undir handleiðslu þjálfara, með það markmið að ná árangri í keppni í greininni. Sjá nánar hér
Hvernig er þjónustan í MK við nemendur með námserfiðleika, t.d. lesblindu og ADHD?
Við Menntaskólann í Kópavogi er rekið öflugt þjónustunet fyrir nemendur og lagt er kapp á að aðstoða alla nemendur við að ná árangri í námi. Við skólann starfa þrír náms- og starfsráðgjafar. Hlutverk þeirra er að aðstoða nemendur með allt sem getur haft áhrif á nám þeirra og námsárangur eins og náms- og starfsval og persónuleg mál. Nemendur eru hvattir til að hafa samband við námsráðgjafa sem fyrst til að fá sem besta þjónustu. Tímabókanir hér.
Ef nemandi er í myndlistar-, tónlistar- eða listdansnámi, getur hann fengið það metið?
Já hægt er að fá allt að 10 einingar á fyrsta til þriðja hæfniþrepi fyrir nám í ýmsum skólum eða námskeið á vegum ýmissa samtaka. Sjá nánar hér
Hvað gerist ef ég fell í áfanga?
Ef nemandi fellur í áfanga er hann sjálfkrafa settur í hann aftur nema hann hafi samband við áfangastjóra og óski eftir að fresta því að taka áfangann. Nemanda er einungis heimilt að skrá sig í sama áfanga þrisvar hvort sem er í MK eða í fjarnámi frá öðrum skóla. Þrífall getur varðað brottvikningu úr skólanum.