Í Menntaskólanum í Kópavogi er í boði metnaðarfullt bóknám og verknám á mörgum brautum. Þar er einnig afrekssvið þar sem metnaðarfullt íþróttafólk, sem æfir undir handleiðslu þjálfara í skipulögðu íþróttastarfi, getur valið nám til stúdentsprófs þar sem tekið er tillit til íþróttaiðkunar þeirra. Þá er í MK sérnámsbraut sem ætluð nemendum sem hafa notið verulegrar sérkennslu í grunnskóla, fengið kennslu í námsveri, sérdeild eða sérskóla.
Undir hatti Menntaskólans í Kópavogi er einnig Leiðsöguskólinn sem býður upp á nám til undirbúnings fyrir starf leiðsögumanns ferðamanna á Íslandi.
Stefna Menntaskólans í Kópavogi er að veita nemendum möguleika til menntunar og þroska á þeirra forsendum í framsæknum skóla. Skólinn kappkostar að bjóða hagnýtt og fjölbreytt nám sem undirbýr nemendur fyrir störf í atvinnulífinu eða frekara nám.
Menntaskólinn í Kópavogi leggur áherslu á þekkingu, þroska, þróun og þátttöku í allri starfsemi skólans með hag nemenda og starfsmanna að leiðarljósi. Menntaskólinn í Kópavogi er menntaskóli í víðasta skilningi, skóli bóklegra og verklegra mennta.
Í Menntaskólanum í Kópavogi eru fjórar brautir til stúdentsprófs ásamt framhaldsskólabrú og sérnámsbraut fyrir nemendur á einhverfurófi. Að auki er öflugt afreksíþróttasvið við skólann. Hér að neðan eru tenglar inn á upplýsingar um brautir sem í boði eru:
Síða í vinnslu 
Síða í vinnslu 
Nemendafélag Menntaskólans í Kópavogi - NKM
Nemendafélag Menntaskólans í Kópavogi á sér jafnlanga sögu og skólinn sjálfur.
Mánudaginn 1. október 1973 stofnuðu nemendur skólafélag er nefndist Nemendafélag Menntaskólans í Kópavogi. Kosið var nemendaráð sem var stjórn félagsins. Í því sátu sjö nemendur, einn úr hverri bekkjardeild skólans auk oddamanns sem var kjörinn á stofnfundi þess. Megintilgangur með stofnun skólafélagsins var að efla samheldni meðal nemenda og félagsþroska þeirra.
Síða í vinnslu 
Kynningarefni
Síða í vinnslu 