BARA1AA05 - Vínstúka og veislur
Í áfanganum er farið yfir vinnu á bar/vínstúku, notkun glasa, sérhæfðra tækja, áhalda og íblöndunarefna. Samanburður á mismunandi gerðum kokteila, verklagi við blöndun þeirra og mismunandi blöndunaraðferðum. Farið er yfir vinnu í veitingasal og undirbúning viðburða. Uppsetning á veitingasölum, aðferðir við að leggja á borð og mismunandi munnþurrkubrot.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- verkferlum og áhöldum á bar / vínstúku.
- skipulagningu og uppsetningu á bar.
- varðveislu birgða.
- hráefnisþörf og fullnýtingu þess.
- mismunandi aðferðum við að leggja á borð og notkun áhalda.
- mismunandi munnþurkubrotum.
- hreinlæti á vinnusvæðum.
- persónulegu hreinlæti.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- setja upp og skipuleggja bar sem vinnusvæði.
- nota íblöndunarefni.
- beita réttu verklagi.
- nota mælieiningar og hugtök.
- beita áhöldum og tækjum til blöndunar.
- leggja á borð samkvæmt mismunandi matseðlum.
- brjóta munnþurrkur á mismunandi hátt.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- skipuleggja bar út frá faglegri uppröðun miðað við vinnu- og hreinlætisferla.
- aðstoða við framreiðslu á bar/vínstúku.
- nota mismunand blöndunaraðferðir við gerð kokteila.
- stilla upp veitingasal.
- leggja á borð fyrir mismunandi matseðla.
- ganga frá vinnusvæðum með ábyrgum hætti.
- gæta að eigin hreinlæti.
Undanfari: Enginn
Námsmat: Sjá kennsluáætlun