ÍSLE3CE05 - Íslensk tónlistarsaga – frá dægurtónlist til dauðarokks

Markmið áfangans er að nemendur öðlist þekkingu á sögu og samhengi íslenskrar dægurlagatónlistar, tengi hana við tíðaranda, strauma og stefnur (þ.m.t. í bókmenntum) í gegnum textagerð, og fái þannig tilfinningu fyrir hvernig hún hefur þróast í gegnum tíðina. Nemendur þjálfist í lestri fræðigreina, öðlist leikni í að skilja aðalatriði frá aukaatriðum og tjá sig út frá þeim í ræðu og riti. Lögð er áhersla á tónlistarhlustun, virkni og þátttöku í umræðum.

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • sögu og þróun íslenskrar dægurtónlistar frá öndverðu til okkar daga, m.a. í gegnum lestur fræðigreina, spjall og hlustun.
  • hvernig tónlist og dægurlagatextar hafa mótast af menningunni á hverjum tíma.

þeim breytingum sem orðið hafa á tónlistarumhverfinu hér á landi, t.a.m. tæknimöguleikum, þátttöku kvenna og útflutningi á tónlist. 

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • skilja samhengið í íslenskri tónlistarsögu.
  • lesa fræðigreinar um tónlistartengd málefni.

tjá sig munnlega og skriflega um tónlistarsöguna og samhengið innan hennar.

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • geta fjallað af skilningi og þekkingu um íslenska dægurtónlist í sögulegu samhengi.

Undanfari: ÍSLE2BB05 

Námsmat: Sjá kennsluáætlun