Markmið áfangans er að dýpka færni nemenda í að kljást við orðræðu samtímans, bera kennsl á ríkjandi hugmyndafræðilega strauma og hvaða áhrif þeir hafa á ólíka hópa samfélagsins. Sérstök áhersla verður á ástarrannsóknir til að skoða hugmyndir um kynjaðar sjálfsmyndir, ást og áhrif á samskipti, umhyggjuhagkerfið, náin sambönd og ofbeldi.
Lykilorð: Áhrifavaldar, kynjuð orðræða, náin sambönd, straumar afturhalds, tradwife, ást, öfga-hægri og þriðja vaktin.