Í fyrramálið er appelsínugul viðvörun frá kl. 7:00-13:00. Búið er að fella niður afrekstíma, sem eru frá kl. 8:00-10:00 og allar kennslustundir falla niður hjá sérnámsbraut.
Staðan verður tekin kl. 8:00 í fyrramálið og þá ákveðið hvort kennsla hefjist kl. 10:15 eða ekki. Við biðjum ykkur því um að fylgjast með tölvupósti og heimasíðu skólans strax í fyrramálið. Nemendur bera ábyrgð á að fylgjast með skilaboðum frá kennurum og heimasíðu skólans.
Árshátíð nemendafélagsins verður haldin samkvæmt áætlun.