Heitavatnslaust í dag, þriðjudaginn 14. apríl

Í gærkvöldi fór heitavatnslögn í sundur í hverfi skólans. Unnið er að viðgerð en gert er ráð fyrir að hún muni standa yfir til kl. 16:00 í dag. Ekkert heitt vatn er í skólanum og þess vegna getum við ekki boðið upp á heitan mat í hádeginu. Hægt verður að kaupa rúnstykki, egg og pastabakka í mötuneytinu. Þetta hefur engin áhrif á kennslu í dag. Veitur biðjast velvirðingar á þessum óþægindum.