Kennsla fellur niður í dag, fimmtudaginn 26. mars

Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu eru spár að ganga eftir og enn er gert ráð fyrir appelsínugulri viðvörun frá kl. 7:00-13:00. Öll staðkennsla fellur því niður í dag og við biðjum nemendur að fylgjast vel með fyrirmælum kennara í hverjum áfanga.

Árshátíð nemendafélagsins verður haldin samkvæmt áætlun þar sem veðrið á að ganga niður eftir hádegi.