Í MK er notkun gervigreindar leyfð til þess að styðja við nám en aldrei til þess að koma í staðinn fyrir það. Nemendur eru ávallt ábyrgir fyrir sinni eigin vinnu.
Nemendur eru ábyrgir fyrir því að vera gagnsæir í notkun sinni á gervigreind og kennarar geta kallað eftir hlekkjum að samtölum sem aðstoðuðu við úrlausn verkefna.
Kennarar geta sett sértækar takmarkanir á notkun gervigreindar við ákveðin verkefni og nemendur skulu fylgja þeim fyrirmælum. Ef nemandi er í vafa hvort gervigreind sé leyfð við lausn verkefnis þá skal hann leita til kennara.
Einföld viðmiðunarregla sem nemendur geta stuðst við:
- Spurðu þig: ef kennarinn minn sæi nákvæmlega hvernig ég notaði gervigreindina, myndi hann/hún samþykkja það?
- Já: Notkunin er líklega í lagi: mundu samt að tilgreina hana ef hún hafði umtalsverð áhrif.
- Nei eða veit ekki: Spurðu kennarann ÁÐUR en þú heldur áfram.
- Forðastu að nota gervigreind á þann hátt sem þú vilt ekki gera grein fyrir.
Stefnu MK um notkun gervigreindar í skólastarfi má sjá hér