ATVL4AV02 - Atvinnuvegir

Í áfanganum er fjallað um undirstöðuatvinnuvegi þjóðarinnar, þróun og breytingar í sjávarútvegi, iðnaði, orkumálum, ferðaþjónustu, landbúnaði, hlunnindum, verslun, viðskiptum og þjónustu. Lögð er áhersla á sögu greinanna hér á landi, stöðu þeirra í dag og framtíðarþróun. Staðreyndir um atvinnuvegi eru einnig settir í alþjóðlegt samhengi. Þá eru atvinnuvegir skoðaðir út frá sjálfbærni og náttúruvernd (s.s. sjálfbærni fiskveiðistjórnunarkerfis og náttúruvernd sem leiðarljós við nýtingu náttúruauðlinda til orkuöflunar). Nemendur eru þjálfaðir í að sækja sér efni af veraldarvefnum.

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Þróun helstu atvinnuvega landsmanna, s.s. sjávarútvegs, landbúnaðar, hlunnindi, iðnaðar, orkuvinnslu, viðskipta, þjónustu o.fl.
  • Núverandi ástandi og horfum í atvinnumálum þjóðarinnar byggt á sjálfbærni til framtíðar.
  • Helstu viðskiptalöndum og stöðu atvinnugreina þar.
  • Skiptingu inn- og útflutnings eftir vörutegundum og viðskiptalöndum.
  • Skiptingu mannafla eftir atvinnugreinum.

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Útskýra þróun atvinnulífs á Íslandi í dag og til framtíðar m.t.t. sjálfbærni og náttúruverndar.
  • Geta greint mikilvægi einstakra atvinnugreina eftir tímabilum og sett í samhengi við alþjóðlega þróun.
  • Fara yfir helstu tölur er snúa að einstökum atvinnugreinum og hlutfalli þeirra á milli.

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Setja atvinnu- og efnahagsmál á Íslandi í samhengi fyrir ferðamönnum.
  • Almennt að útskýra mikilvægi sjálfbærni og umhverfisverndar í atvinnumálum þjóðarinnar.
  • Gera grein fyrir almennri þróun atvinnulífs á Íslandi almennt og einnig tengt ákveðnum landshlutum.

Undanfari: Enginn.

Námsmat: Sjá kennsluáætlun.