Í áfanganum er unnið með dagbók og reikningsjöfnuð og nemendur læra að leysa flóknari athugasemdir til færslu í millifærslur. Reikningum fjölgar , vörubirgðir eru reiknaðar frá meðalálagningu, unnið er með verðtryggingu, afföll og viðskipti við útlönd með tollafgreiðslu eru kynnt til sögunnar. Farið er yfir óbeinar afskriftir og afföll skuldabréfa. Uppgjör á rekstri og efnahag.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- Að flokka athugasemdir við niðurstöðu dagbókar (prófjöfnuð).
 
- Greina reikninga í efnahags og rekstrarreikninga.
 
- Setja fram rekstrarreikning og efnahagsreikning.
 
- Skilja samhengi meðalálagningar og birgðastöðu.
 
- Þekkja eðli virðisaukaskattskerfis.
 
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- Færa flóknar færslur í dagbók.
 
- Beita hugtökum um meðalálagning, afföll, verðtryggingu og óbeinar afskriftir.
 
- Gera grein fyrir erlendum viðskiptum og yfirfæra erlendar eignir og skuldir í íslenska mynt.
 
- Færa launa- og arðgreiðslur í dagbók og reikningsjöfnuð.
 
- Stilla upp rekstrar- og efnahagsreikning.
 
- Geta gert upp virðisaukaskatt.
 
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- Skipuleggja reikninga í dagbók.
 
- Gera upp einfalt bókhald.
 
- Leggja mat á rekstur, efnahag og eigið fé.
 
- Gera leiðréttingar á bókhaldi byggðar á flóknum athugasemdum.
 
Undanfari: BÓKF1AA05.
Námsmat: Sjá kennsluáætlun.