BOLI4BL05 - Bókmenntir og listir

Í áfanganum er lagður grunnur að þekkingu á bókmenntum og listgreinum á Íslandi. Fjallað er um helstu tímabil og stefnur í íslenskri bókmenntasögu. Sérstök áhersla er lögð á fornbókmenntir s.s. Íslendingasögur og eddukvæði og það samfélag sem slíkar bókmenntir spruttu úr. Skoðuð eru tengsl bókmennta og samfélags í aldanna rás og staða þeirra í nútímasamfélagi. Kynntar eru helstu listgreinar s.s. byggingarlist, myndlist, höggmyndalist, tónlist, leiklist og kvikmyndagerð. Lögð er áhersla á að sýna fram á tengsl listsköpunar á Íslandi við verkmenningu, siði og lífskjör þjóðarinnar. Jafnframt er fjallað um helstu söfn landsins og hvernig þau nýtast í ferðum um landið. Söfn heimsótt s.s. Þjóðminjasafnið og listasafn.

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Innihaldi íslenskra fornbókmennta.
  • Munnlegri geymd eddukvæða og dróttkvæða.
  • Íslensku ritmáli og fyrstu ritum á íslensku.
  • Bókagerð og bókaútgáfu.
  • Íslendingasögum, kenningum um tilurð og gildi þeirra fyrir Íslendinga.
  • Þýðingum og útgáfu Biblíunnar á íslensku.
  • Nútímabókmenntum.
  • Rímum og þætti þeirra í íslensku þjóðlífi.
  • Íslenskum heimilisiðnaði.
  • Þróun helstu listgreina sem hér eru stundaðar, s.s. byggingarlist, myndlist, höggmyndalist, tónlist, leiklist og kvikmyndagerð.
  • Listahátíðum á Íslandi.
  • Kynningum á íslenskum listgreinum erlendis.
  • Tengslum verkmenningar og listsköpunar í tímans rás.
  • Mikilvægi og not af heimsóknum á söfn.

 Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Segja sögu íslenskra bókmennta og gera grein fyrir bókmenntaarfi þjóðarinnar.
  • Útskýra þróun og stöðu helstu listgreina á Íslandi í dag.

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Gera ferðamönnum grein fyrir bókmenntasögu þjóðarinnar og mikilvægi hennar fyrir íslenska sögu og menningu frá landnámi til dagsins í dag.
  • Útskýra stöðu lista og menningar í dag og mikilvægi þess fyrir íslenskt þjóðfélag.
  • Undirbúa safnaheimsókn.

Undanfari: Enginn.

Námsmat: Sjá kennsluáætlun.