Í áfanganum er fjallað um dýralíf á Íslandi með höfuðáherslu á sérstöðu þess. Farið er yfir flokka dýraríkisins og helstu og áhugaverðustu dýrategundir skoðaðar. Byrjað er á smádýrum og svo kafað í fiska og hvali. Því næst er stigið á land þar sem villt landspendýr og húsdýr eru til umfjöllunar. Síðast en ekki síst er sjónum beint að auðugu fuglalífi landsins. Farið er yfir þróun, einkenni, fæðu og búsvæði dýranna ásamt áhrifum þeirra á lífríkið og áhrif mannsins á dýrin. Þá er lífríkið skoðað m.t.t. sérstöðu, nýtingar, sjálfbærni og náttúruverndar.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- Sérstöðu íslensks lífríkis. Hvaða dýrategundir finnast á og við ísland, uppruna þeirra, þróun, einkenni, sérstöðu, nýtingu og hlutverk í lífríkinu.
- Íslensku húsdýrunum, villtum landspendýrum, sjávarspendýrum, skordýrum og skeldýrum og algengustu fuglategundum sem hér verpa.
- Samspil í fæðuvali dýra, lifnaðarháttum þeirra og gerð vistkerfa á Íslandi.
- Þekkja reglur um dýrahald, innflutning og umgengni við dýr á íslandi.
- Mikilvægi sjálfbærni og náttúruverndar fyrir vistkerfi Íslands.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- Segja frá íslenskum dýrum og lífríki á áhugaverðan hátt.
- Þekkja dýr í sjón og vita hvar þau er að finna, sérstaklega fugla.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- Útskýra fánu Íslands fyrir ferðamönnum, hvort heldur sem er á lofti, láði eða legi.
- Segja frá mikilvægi fánu Íslands og geta sett í samhengi við byggð í landinu frá landnámi.
- Segja frá því sem ferðamönnum kann að finnast áhugavert við lífríki Íslands og sett áhugaverðar staðreyndir í samhengi.
- Kynna mikilvægi náttúruverndar og sjálfbærni fyrir ferðamönnum á Íslandi.
Undanfari: Enginn.
Námsmat: Sjá kennsluáætlun.