Í áfanganum er farið í helstu þætti ferðamennsku og rötunar. Áhersla er lögð á mikilvægi góðra ferðaáætlana, rötun, kennslu á áttavita og staðsetningu með GPS-tækjum ásamt leiðarvali. Verkleg æfing fer fram á vettvangi. Kortalestur er kenndur og mismunandi gerðir korta skoðaðar. Tekinn er fyrir útbúnaður til göngu og fjallaferða með áherslu á klæðnað, næringu og orku. Farið er í eðli straumvatna og ferðalög í brattlendi. Fjallað er um mikilvægi góðrar fararstjórnar og viðbrögð við óvæntum aðstæðum í hópi, ásamt umgengni og náttúruvernd á tjaldstæðum og í fjallaskálum. Áfanginn er að hluta til verklegur þar sem notkun áttavita og GPS tækja er þjálfaður á vettvangi og þverun straumvatna er kennd og æfð á vettangi.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- Notkun áttavita og GPS-tækja, kortalestri, leiðarvali og tímaáætlunum.
- Búnaði til göngu- og fjallaferða s.s. fatnaði, skóm, svefnpokum, tjöldum, prímusum, eldhústjöldum og tilheyrandi búnaði til eldamennsku í rútu- og trússferðum, einnig öryggisbúnaði leiðsögumanns.
- Grunnatriðum næringarfræði og samsetningu nestis.
- Skipulagi eldamennsku lítilla hópa ferðamanna og hvernig haldið er utan um birgðir í langri gönguferð.
- Mismun og eðli straumvatna, vali á vaði og mismunandi aðferðum til að vaða straumharðar ár.
- Vali á tjaldstæði með tilliti til umhverfisþátta, uppsetningu tjaldbúða, frágangi tjalda, hreinlæti á tjaldstæði.
- Skilning á mikilvægi sjáfbærni og náttúruverndar sem og umgengni við fjallaskála og aðra gististaði.
- Mismunandi aðstæðum og hættum m.v. árstíma.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- Nota áttavita, GPS og landakort.
- Meðhöndla búnað í göngu ferðum úti í náttúrunni og til fjalla.
- Velja sér gististaði m.t.t náttúru, umhverfis og öryggisþátta.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- Fara með ferðahópa gangandi út í náttúruna og til fjalla.
- Geta metið aðstæður og taka ákvarðanir eins og hvort það eigi að snúa við.
- Ákveða nauðsynlegan búnað eftir aðstæðum og lengd ferðar og getað notað búnaðinn með réttum hætti.
- Ganga eftir korti, áttavita og GPS tæki.
- Sýna forystuhæfileika og ábyrgð í að leiða hóp.
Undanfari: Nemandi þarf að hafa lokið a.m.k. 10 einingum í kjarna leiðsögunáms.
Námsmat: Sjá kennsluáætlun.