FEÞJ3FE01 - Ferðaþjónusta
Í áfanganum er fjallað um sögu og þróun ferðaþjónustu á Íslandi og í heiminum. Fjallað verður um grundvallarhugtök í ferðafræði og hinar ýmsu starfsgreinar ferðaþjónustu kynntar sem og ferðaframboð. Ferlið frá því að ferð er skipulögð, kynnt og seld erlendis þar til ferðamennirnir koma til landsins er útskýrt. Lög og reglugerðir í íslenskri ferðaþjónustu eru kynntar. Farið er yfir grundvallaratriði í réttindum neytenda. Fjallað er um hlutverk og starfsemi opinberra stofnana og félaga innan ferðaþjónustunnar, ferðakannanir, tölulegar upplýsingar og þýðingu þeirra fyrir ferðaþjónustuna.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- Sögu og þróun ferðaþjónustu í heiminum og á Íslandi ásamt helstu hugtökum.
- Lögum og reglum í íslenskri ferðaþjónustu.
- Neytendavernd í íslenskri ferðaþjónustu.
- Mismunandi hlutverkum hinna ýmsu starfsgreina ferðaþjónustu og skilji mikilvægi góðrar samvinnu þeirra á milli.
- Mismunandi þörfum og væntingum ferðamanna og geti brugðist við í samræmi við væntingum þeirra.
- Mikilvægi leiðsögumanna við upplifun ferðamanna.
- Hlutverki og starfsemi Ferðamálastofu, Samtaka ferðaþjónustunnar og Hagstofunnar.
- Mikilvægi og markmiði landkynningar og markaðssetningu Íslands.
- Ferlinu frá því að ferð er skipulögð, kynnt og seld erlendis þar til ferðamenn koma til landsins.
- Vakanum og alferðum; ábyrgð og skyldur leiðsögumanna og ferðamanna.
- Ferðamálakakönnunum og þýðingu þeirra.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- Beita helstu hugtökum í ferðaþjónustu/ferðafræðum.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- Veita ferðamönnum alhliða almenna þjónustu og upplýsingar um ferðamannalandið Ísland.
Undanfari: Enginn.
Námsmat: Sjá kennsluáætlun.