FYHJ3FH01 - Fyrsta hjálp I
Fjallað er um aðgerðir á vettvangi, skoðun og mat. Endurlífgun kennd og þjálfuð. Farið er í helstu blæðingar, lost og viðbrögð við lostástandi. Teknar eru fyrir helstu tegundir sára, umbúðir og sárabindi. Farið er í helstu orsakir bruna, flokkun brunasára og skyndihjálp við bruna. Helstu höfuð-, háls- og hryggáverkum eru gerð skil ásamt brjóst-, kvið- og mjaðmaáverkum. Einnig er farið í beina-, liðamóta- og vöðvaáverka. Kennt er að spelka útlimi með áverka. Farið er í bráða sjúkdóma, eitranir, bit og stungur. Fjallað er um viðbrögð við kali og ofkælingu og háska af völdum hita. Farið er í björgun og flutning einstaklinga af slysstað. Mikilvægi sálrænnar skyndihjálpar áréttað.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- Þeirri hugmyndafræði sem Fyrsta hjálp byggir á.
- Framkvæmd mats og skoðun á slösuðum einstaklingum.
- Að bregðast við yfirvofandi lostástandi geta brugðist rétt við dauðadái.
- Helstu tegundum sára.
- Að meta brunasár og kunna að bregðast við bruna.
- Helstu höfuð-, háls-, og hryggáverkum og geta veitt fyrstu hjálp við slíkum áverkum.
- Helstu brjóst-, kvið-, og mjaðmaáverkum og geta brugðist við þeim.
- Helstu beina-, liðamóta-, og vöðvaáverkum og geta veitt skyndihjálp við slíkum áverkum.
- Spelkun við brot/tognanir.
- Fyrsta hjálp við bráðum sjúkdómum.
- Forvörnum við kali, ofkælingu og ofhitnun og geta veitt viðeigandi skyndihjálp við slíkum áverkum.
- Mikilvægi sálrænnar skyndihjálpar.
- Hvenær þörf er á að beita endurlífgun.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- Bregðast við áverkum hvort sem þeir snúa að höfði, hálsi eða hrygg; brjósti, kvið eða mjöðmum; beinum, liðamótum eða vöðvum.
- Spelka við brotum eða tognunum.
- Eiga uppbyggileg samskipti við hinn slasaða.
- Beita grunnendurlífgun á börnum og fullorðnum.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- Gera ferðir um landið öruggar og geta brugðist við óvæntum aðstæðum; slysum og óhöppum.
- Geta veitt fyrstu hjálp, tryggt vettvang, forgangsraðað slösuðum og undirbúið flutning slasaðra af slysstað.
Undanfari: Enginn.
Námsmat: Sjá kennsluáætlun.