FYHJ3GÖ01 - Fyrsta hjálp II

Í áfanganum er byggt ofan á þann grunn sem lagður er í undanfaranum FYHJ3FH01, svo sem meðhöndlun meiðsla og veikinda. Farið er í skráningu og tilkynningu slysa. Einnig viðbrögð við hópslysi og dauðsföllum. Fjallað er um viðbrögð við kali og ofkælingu. Leiðbeint er um forgangsröðun á vettvangi, aðbúnað slasaðra og flutning af slysstað, móttöku þyrlu og áfallahjálp á slysstað.

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Viðbrögðum ef slys, veikindi eða dauðsfall ber að höndum.
  • Meðhöndlun helstu álagsmeiðsla og veikinda.
  • Einkennum ofkælingar og hvernig beri að varast hana.
  • Viðbrögðum við stórslysum og náttúruhamförum.

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Veita fyrstu hjálp í ferðalögum í óbyggðum og öllum veðrum.
  • Veita meðhöndlun við helstu álagsmeiðslum og veikindum.
  • Greina ofkælingu og hvað beri að varast þegar ofkæling kemur upp.
  • Halda samskiptum við flugmann þyrlu og velja henni lendingarstað.

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Bregðast við hverskonar óvæntum uppákomum í gönguferðum í óbyggðum.
  • Stýra aðgerðum á vettvangi og forgangsraða hinum slösuðum.
  • Veita nauðsynlega fyrstu hjálp við meiðslum og veikindum.
  • Búa um slasaða/sjúklinga, undirbúa flutning og flytja af slysstað.
  • Geta kallað til þyrlu og valið henni lendingarstað ef þörf er á.
  • Að veita áfallahjálp og sinna slösuðum og öðrum farþegum þar til hjálp berst.

Undanfari: Nemandi þarf að hafa lokið a.m.k. 10 einingum í kjarna leiðsögunáms, FYHJ3FH01.

Námsmat: Sjá kennsluáætlun.