GRÓN4GN03 - Gróður og náttúruvernd
Í áfanganum er fjallað um flóru Íslands og sérstöðu hennar. Teknir eru fyrir helstu flokkar plantna og nemendur þjálfaðir í notkun handbóka á því sviði. Farið er yfir gróðursögu landsins með hliðsjón af gróðureyðingu, endurheimt landgæða og sjálfbærri nýtingu gróðurfars. Lögð er áhersla á skógrækt, náttúruvernd, friðlýsingu og umgengni við land og mið. Áherslur Íslands í umhverfismálum eru skoðaðar sem og alþjóðasamningar. Í vettvangsferð er lögð áhersla á að nemendur kynnist íslensku gróðurfari.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- Gróðurfari á Íslandi á tertíertímabilinu, ísöld og við landnám.
- Séreinkennum íslensks jarðvegs.
- Helstu orsökum og afleiðingum gróðureyðingar eftir landnám.
- Hvernig staðið er að landgræðslu og skógrækt á Íslandi.
- Algengustu plöntutegundum hér á landi.
- Umhverfismálum, náttúruvernd og sjálfbærni.
- Upphafi þróunar náttúruverndar í heiminum og hér á landi.
- Starfsemi umhverfisráðuneytis og stofnana á þessu sviði.
- Ýmsum flokkum friðunar.
- Samskiptum manns og náttúru.
- Áhrifum ferðamennsku á umhverfið.
- Þekkja lög og reglugerðir um náttúruvernd.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- Útskýra þróun gróðurfars á Íslandi.
- Segja frá ástæðum gróðureyðingar.
- Kynna landgræðslu og skógrækt.
- Greina helstu plöntutegundir hér á landi.
- Segja frá skipulagi umhverfismála, friðunar og áhrifum ferðamennsku á íslenska náttúru m.t.t sjálfsbærni íslenskrar náttúru.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- Útskýra af yfirsýn samspil náttúru og manns í íslenskri náttúru m.t.t. gróðueyðingar og uppgræðslu; verndar og friðunar.
- Segja frá og lýsa helstu plöntutegundum í náttúru Íslands.
- Útskýra markmið friðunar og áhrif ferðamennsku á náttúru landsins.
Undanfari: Enginn.
Námsmat: Sjá kennsluáætlun.