HÓST3GÖ02 - Hópstjórn

Hlutverk gönguleiðsögumanns er greint og mismunandi leiðtogastílar skoðaðir. Hvað einkennir góðan leiðtoga? Hvernig er lagður grunnur að góðu trausti milli leiðsögumanns og hóps? Fjallað um upplýsingaþörf farþega og mikilvægi þess að veita viðeigandi upplýsingar á réttum tíma. Tryggja að upplýsingagjöf skili sér til allra. Sérstök áhersla er lögð á ábyrgð og neytendavernd og það sem einkennir hlutverk leiðsögumanns sem þjónustuaðila og öryggisvarðar. Kynntir eru styrkingarþættir sálfræði og hópefli. Farið er í eðli samskipta við samstarfsaðila s.s. ferðaskipuleggjendur, bílstjóra, landverði, starfsmenn gististaða o.fl.

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Hlutverki og ábyrgð leiðsögumanns í gönguferðum.
  • Mikilvægi góðs undirbúnings fyrir ferðir s.s. gerð ferðaáætlana, fylgjast með veðurspám o.s.frv.
  • Göngutækni og mismunandi ferðahraða hópa.
  • Mikilvægi góðra samskipta.
  • Mismunandi leiðogastílum.
  • Helstu atriðum neytendaverndar varðandi ferðamenn.

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Stjórna hópi á jákvæðan og uppbyggilegan hátt.
  • Lesa mismunandi hópa.
  • Dreifa verkefnum milli ferðamanna.
  • Koma upplýsingum til ferðamanna á réttum stað og stund.
  • Útskýra mikilvægi náttúruverndar og sjálfbærni í íslenskri náttúru.

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Nýta þá stjórnunaraðferð sem á við hverju sinni með vellíðan og öryggi farþega í huga.
  • Tryggja að allir ferðamenn fái nauðsynlegar upplýsingar á réttum tíma.
  • Velja viðeigandi frásagnarefni fyrir stað og stund og hæfilega frásagnarlengd.
  • Eiga jákvæð og örugg samskipti við bæði farþega og samstarfsaðila s.s. ferðaskipuleggjanda, bílstjóra, landverði, starfsmenn gististaða o.fl.

Undanfari: Nemandi þarf að hafa lokið a.m.k. 10 einingum í kjarna leiðsögunáms, FERÖ4GÖ04.

Námsmat: Sjá kennsluáætlun.