ÍSSÖ4AL02 - Íslendingasögur

Fjallað er um fjórar íslendingasögur sem nemendur lesa fyrir tíma.

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Fjórum Íslendingasögum, efni þeirra og innihaldi; sögusviði og helstu persónum.

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Segja frá fjórum Íslendingasögum á lifandi og skemmtilegan hátt þannig að farþegar hafi bæði gagn og gaman af.

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Segja frá og setja í samhengi efni þessara fjögurra Íslandssagna. Geta túlkað sögurnar á einfaldan hátt og tengt við sögusvið þeirra.

Undanfari: Nemandi þarf að hafa lokið a.m.k. 10 einingum í kjarna leiðsögunáms.

Námsmat: Sjá kennsluáætlun.