Í áfanganum fer fram þjálfun í framsögn, raddbeitingu, frásagnartækni og framkomu. Farið er í helstu þætti mannlegra samskipta, hópstjórn og hópsálfræði. Lögð er áhersla á samskipti við ferðamenn af mismunandi þjóðerni og skoðaðir mismunandi menningarheimar og trúarskoðanir. Náttúrutúlkun útskýrð. Fjallað er um ólíkar tegundir ferða og útfærslu þeirra og samskipti leiðsögumannsins við ferðamenn og ferðaþjónustuaðila. Öryggismál og neytendavernd skoðuð. Nemendur fá innsýn í störf leiðsögumanna með því að fara í ferð með reyndum leiðsögumanni.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- Skipulagningu og útfærslu ferða.
- Framsögn, raddbeitingu, frásagnartækni og vali á frásagnarefni.
- Notkun á hljóðnema og líkamsbeitingu.
- Hvernig á að segja frá utan rútu/farartækis og á göngu svo tryggt sé að allir farþegar heyri.
- Hópstjórn, hópsálfræði og mismunandi lífs- og trúarskoðunum.
- Upplýsingum til ferðamannsins um öryggisatriði, viðvaranir á hættusvæðum og í áhættuferðum.
- Mannlegum samskiptum.
- Virkri hlustun og lausn ágreiningsmála.
- Samskiptum við ferðamenn af mismunandi þjóðerni og frá mismunandi menningarheimum.
- Náttúrutúlkun í upplifun ferðamanna.
- Neytendavernd.
- Samskiptum við þjónustuaðila, s.s. ferðaskrifstofur, gististaði, bílstjóra, starfsfólk, eldhúsbíla, tjaldstæði, þjóðgarða og veitingastaði.
- Að leita til fagaðila þegar þörf krefur.
- Að fylgja siðareglum ferðaskrifstofu sem unnið er fyrir hverju sinni.
- Þekkja lög og réttindi er varða störf leiðsögumanna.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- Nýta sér þekkingu á framsögn og framkomu í samskiptum við ferðamenn og ferðaþjónustuaðila.
- Þekkja til mismunandi siða og venja mismunandi þjóðerna og menningarhópa.
- Beita markvissri hópstjórn og hópsálfræði ásamt því að geta gert grein fyrir öryggisatriðum og viðvörunum á hættusvæðum.
- Sýna þjónustulund og heiðarleika í samskiptum.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- Skapa ferðamönnum skýra umgjörð um ferðir um landið hvort sem það snýr að almennri framsögn og frásagnartækni, náttúrutúlkun, hópstjórn, mannlegum samskiptum bæði almennt og sérstaklega þar sem samskskipti snúa að öryggismálum og hættum.
- Vera fær um að þjónusta ferðamenn af ólíkum uppruna og menningu með mismunandi trúarbrögð, venjur og siði sem og taka tillit til sérþarfa séu þær fyrir hendi.
Undanfari: ATVL4AV02, FEÞJ3FE01, BOLI4BL05, DÝRA4DL03, GRÓN4GN03, ÍSAM4ÍS02, JARÐ3JÍ04, SAGA4SG02, TMNO4FÞ05.
Námsmat: Sjá kennsluáætlun.