LEIL4AL02 - Leiðsögutækni II

Fjallað um upplýsingaþörf farþega og mikilvægi þess að veita viðeigandi upplýsingar á réttum tíma. Tryggja að upplýsingagjöf skili sér til allra. Sérstök áhersla er lögð á ábyrgð og neytendavernd og það sem einkennir hlutverk leiðsögumanns sem þjónustuaðila og öryggisvarðar. Farið er í eðli samskipta við samstarfsaðila, s.s. ferðaskipuleggjendur (þ.m.t. skemmtiferðaskip og hvataferðir), bílstjóra, landverði, starfsmenn gististaða o.fl. Fjallað er um grundvallaratriði kortalesturs, útbúnað fyrir styttri gönguferðir (fatnaður, skyndihjálparbúnaður og næring) og uppbrot í ferðum s.s. með leikjum.

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Hlutverki og ábyrgð leiðsögumanns.
  • Helstu atriðum neytendaverndar.
  • Mikilvægi góðra samkipta.
  • Mikilvægi þess að hafa réttan og viðeigandi búnað í ferðum.
  • Mismunandi eðli hópa og að miða leiðsögn við það.

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Lesa landakort og þekkja helstu tákn.
  • Koma upplýsingum til ferðamanna á réttum stað og stund.

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Tryggja að allir ferðamenn fái nauðsynlegar upplýsingar á réttum tíma.
  • Velja viðeigandi frásagnarefni fyrir stað og stund og hæfilega frásagnarlengd.
  • Eiga jákvæð og örugg samskipti við bæði farþega og samstarfsaðila s.s. bílstjóra, landverði, gististaði og aðra viðkomustaði.

Undanfari: Nemandi þarf að hafa lokið kjarna í leiðsögunám.

Námsmat: Sjá kennsluáætlun.