Í áfanganum er farið í einkenni veðurfars á Íslandi og sérstaklega til fjalla. Fjallað er um vind, veðurlag eftir vindáttum, áhrif landslags á vind og vindkælingu á bert hörund. Einnig er farið í hitastig, landslag og lækkun hitastigs með hæð, úrkomu og úrkomudreifingu, þátt fjalla, skyggni, þoku og skafrenning. Tekin eru fyrir helstu veðurkerfi við Ísland og áhrif sjávar og hafstrauma á íslenskt veðurlag. Sérstök áhersla er á veðurspár, veðurathuganir og ályktunarhæfni. Jafnframt er fjallað um jökla og íshreyfingar, afkomu jökla, sjálfbærni og afrennsli þeirra, svo og veðurfarsbreytingar og áhrif þeirra á jökla. Jöklamælingar, áhrif jökla á umhverfi og afleiðingar jökulrýrnunar. Skoðuð er jarðfræði vinsælla gönguleiða og sjónum beint að því sem helst er frásagnarvert. Fjallað er um tunglið, stjörnuhimin og norðurljós.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- Helstu einkennum veðurfars á Íslandi og veðurfari til fjalla.
- Áhrifum landslags og sjávarstrauma á veðurfar.
- Vindum, úrkomu, loftmassa, skilum, lægðum og veðri samfara þeim.
- Breytingum á vindi, hitastigi, úrkomu og skyggni með aukinni hæð.
- Orsökum loftslagsbreytinga og áhrifum þeirra á veðurfar, jökla, ár, landris, sjávarstöðu, flóru og fánu á Íslandi.
- Algengustu gerðum jökla á Íslandi, hegðun þeirra, sjálfbærni og ástandi á mismunandi árstíma.
- Áhrifum jökla á umhverfið, jöklamælingar og afleiðingum jökulrýrnunar.
- Helstu jarðfræðilegu kennileitum á vinsælum gönguleiðum.
- Eðli og tilurð norðurljósa.
- Frásagnarverðum staðreyndum um himingeimin s.s. tunglmyrkva, stjörnur og stjörnukerfi.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- Útskýra helstu veðurkerfi og geta ályktað um veður sem og áhrif hafstrauma á veðurlag.
- Útskýra áhrif veðurs á jökla og afkomu þeirra.
- Lesa í norðurljósaspár.
- Gefa einfaldar leiðbeiningar varðandi myndatöku af norðurljósum og himingeiminum.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- Útskýra fyrir ferðamönnum veðurlag og helstu veðurkerfi á Íslandi og áhrif veðurs á útivist og göngur.
- Lesa, skilja og túlka veðurspár á mismunandi svæðum út frá landslagi.
- Útskýra fyrir ferðamönnum áhrif veðurfarsbreytinga á afkomu og sjálfbærni jökla.
- Setja fram áhugaverðar staðreyndir um veður og jökla s.s. breytingar á veðurfari og stærðir jökla í sögulegu samhengi.
- Segja frá tilurð norðurljósa og líkum á þeim m.v. norðuljósaspár.
- Segja frá helstu jarðfræðifyrirbrigðum á gönguleiðum.
Undanfari: Nemandi þarf að hafa lokið a.m.k. 10 einingum í kjarna leiðsögunáms, JARÐ3JÍ04.
Námsmat: Sjá kennsluáætlun.