NÁTT3AL01 - Náttúrufræði (veður, jöklar og norðurljós)

Fjallað er um veðurfar, veðurfarsbreytingar, lægðir, skil og veðurlag á Íslandi sem og hvað einkennir veðráttu á Íslandi. Einnig hver áhrif landslags eru á veðurfar. Norðurljós útskýrð, tilurð þeirra, hjátrú og sögur sem tengjast þeim. Helstu kennileiti himinhvolfsins s.s. tunglið og helstu stjörnur og samspil tungls og sólar og sögur þvi tengt.

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Veðurlagi á Íslandi, veðurfarsbreytingum og lofthjúpi jarðar.
  • Hvað einkennir veðráttu á Íslandi.
  • Ástæðum norðurljósa, eðli þeirra og tengslum við sólgos og segulsvið.
  • Grunnþekkingu á ljósmyndun norðurljósa.

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Segja frá helstu veðurkerfum, staðreyndum og sérkennum íslensks veðurfars.
  • Útskýra hvers vegna norðurljós birtast, tengsl við segulsvið og virkni sólar.

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Nýta sér veðurspár og átta sig á áhrifum landslags á veðurfar.
  • Geta metið möguleika á norðurljósum m.t.t. rauntímagagna.
  • Útskýra tilurð norðurljósa og mikilvægi þeirra í íslenskri menningu og sögu.
  • Geta útskýrt samspil tungls og sólar og greint helstu kennimerki himinhvolfsins.

Undanfari: Nemandi þarf að hafa lokið a.m.k. 10 einingum í kjarna leiðsögunáms.

Námsmat: Sjá kennsluáætlun.